Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Segir einn flóttamann á dag enda á götunni á Íslandi: „Þeim hefur tekist ætlunarverk sitt“

Sema Erla Serdar.
Sema Erla Serdar.

Síðustu daga hefur að með­al­tali ein mann­eskja á flótta endað á göt­unni á Íslandi, á dag. Þetta stað­hæfir Sema Erla Serdaroglu.

Sema Erla Serdaroglu, for­maður hjálp­ar­sam­tak­anna Solaris, skrif­aði mik­inn reiðipistil á Facebook í fyrra­dag þar sem hún bendir á hræði­lega stöðu flótta­fólks á Íslandi í dag. Stað­hæfir hún að gríð­ar­leg fjölgun hafi orðið á flótta­fólki sem yfir­völd hafa sett á göt­una. „Nú eru fjórar vikur, FJÓRAR VIKUR! síðan við fengum fyrst fréttir af því að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur væri byrjuð að svipta flótta­fólk allri þjón­ustu og gera því ókleift að upp­fylla grunn­þarfir sínar um þak yfir höf­uðið, nær­ingu, hrein­læti og öryggi. Þá höfðu nokkrir ein­stak­lingar þegar verið heim­il­is­lausir vikum og jafn­vel mán­uðum saman. Á síð­ustu vikum hafa að minnsta kosti 60 ein­stak­lingar verið skyldir eftir, án allra mögu­legra bjarga, á göt­unni. Síðustu daga hefur svo að með­al­tali ein mann­eskja á flótta verið gerð heim­il­is­laus á Íslandi á dag.“

Segir Sema Erla að ekki sé um til­viljun að ræða að nú sé „gefið í.“: „Á þessum tíma­punkti eru flestir orðnir samdauna fréttum af ungum flótta­mönnum sem stjórn­völd hafa dæmt til hung­ursneyðar og ætla að búa til glæpa­menn úr svo hægt sé að loka þá í fanga­búðum. Á þessum tíma­punkti kippir sér eng­inn upp við heim­il­is­laust flótta­fólk. Það er orð­inn „venju­legur hlutur af sam­fé­lag­inu!“ Lang flestir eru svo með­virkir og gegn­sýrðir af kerf­is­bundnum ras­isma að þeim er drullu­sama um fólkið frá Afríku og Mið-Aust­ur­löndum (héldu þið að þetta væri hvítt fólk?) sem á hverjum degi upp­lifir þá nið­ur­læg­ingu að geta ekki séð um sig sjálft og vera upp á annað fólk komið með að lifa að!“

Í pistl­inum segir Sema Erla að Solaris ásamt No Borders sam­tök­unum, aðstoðað á þriðja tug flótta­manna „sem eng­inn vill vita af, sem mega hvergi vera, sem geta ekk­ert farið,“ og séð til þess, með hjálp góð­vilj­ugs fólks í sam­fé­lag­inu, að ein­stak­ling­arnir geti í það minnsta sofið, borðað og þvegið sig. „Á sama tíma og líf­lína fólks stytt­ist, sjóð­irnir okkar þurrkast upp og við bug­umst hvert á fætur öðru; heyr­ist lítið úr stjórn­mál­unum, önnur mann­rétt­inda­sam­tök eru upp­tekin af öðru (að mestu af eigin orð­spori og frama), full­trúar ríkis og sveit­ar­fé­laga svara ekki póstum og skila­boðum og ráð­herrar svara ekki sím­tölum.“

Í loka­orðum sínum segir Sema Erla að yfir­völdum hafi tek­ist það sem þau ætl­uðu sér. „Þeim hefur tek­ist ætl­un­ar­verk sitt. Heim­il­is­laust flótta­fólk er orðið normið í íslensku sam­fé­lagi. Nú er eina spurn­ingin hversu langt er í að kerf­is­bund­inn ras­ismi, með­virkni og vald­sýki muni drepa fyrsta heim­il­is­lausa flótta­mann­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar