Soffía Svanhvít Árnadóttir hefur verið kjörin forseti Hallveigar – Ungs jafnaðarfólks í Reykjavík.
Soffía Svanhvít tekur við sem forseti Hallveigar af Pétri Marteini Urbancic Tómassyni, sem hefur gegnt stöðunni til tveggja ára. Hún er 20 ára nemi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands og hefur síðastliðið ár verið framhaldsskólafulltrúi í framkvæmdastjórn Ungs jafnaðarfólks.
Segist hún vilja fylkja ungu fólki saman um jafnaðarstefnuna. „Ég held að meirihluti Íslendinga sé jafnaðarfólk inn við beinið,“ segir Soffía Svanhvít, ný forseti Hallveigar, á aðalfundi félagsins fyrir helgi. Og bætti við: „Ég vil gera stjórnmálin aðgengilegri fyrir allt ungt fólk; tala mannamál, hlusta og leyfa fólki að hafa sínar skoðanir. Verkefni okkar í UJ er að fylkja ungu fólki saman um jafnaðarstefnuna.“
Þá segist Soffía Svanhvít vera ánægð með áherslur Kristrúnar Frostadóttur. „Mér líst vel á áherslur Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingarinnar, um að fara aftur í kjarna jafnaðarstefnunnar og leggja ofuráherslu á kjör, velferð og efnahag venjulegs fólks. Ég held að meirihluti Íslendinga sé jafnaðarfólk inn við beinið en það þarf að hvetja ungt fólk til meiri þátttöku í stjórnmálum og það vil ég gera.“
Aðalfundur Hallveigar fór fram föstudaginn 18. ágúst, á Hallveigarstíg 1 í Reykjavík, og ný stjórn félagsins var kjörin á fundinum.
Eftirfarandi náðu kjöri í stjórn Hallveigar 2023-2024:
- Soffía Svanhvít Árnadóttir forseti, nemi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands
- Agla Arnars Katrínardóttir, nemi í hagnýtri stærðfræði við Háskóla Íslands
- Árni Dagur Andrésson, nemi í matvælafræði við Háskóla Íslands
- Brynjar Bragi Einarsson, nemi við Verzlunarskóla Íslands
- Ingiríður Halldórsdóttir, öryrki
- Sigurður Einarsson Mäntylä, nemi í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands
- Steindór Örn Gunnarsson, nemi í húsasmíði við Fjölbrautaskólann í Breiðholti
„Þetta er öflugur og fjölbreyttur hópur ungs jafnaðarfólks í Reykjavík og ég hlakka til að vinna með þeim að því að styrkja starf Hallveigar enn frekar,“ sagði hinn nýkjörni forseti Hallveigar um nýju stjórnina.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir