Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Svandís þarf kraftaverk

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra.

Vinsytri grænir undir stjórn Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar glíma við þá skelf­ingu sem fylgir því að vera í dauða­teygj­unum. Flokk­ur­inn mælist ítrekað ver autan þings og stefnir aðeins að óbreyttu í átt að gjör­eyð­ingu.

Við blasir að Sósi­alista­flokkur Gunnars Smára Egils­sonar mælist með næstu helm­ingi meira fylgi en VG og er við það að ná mönnum inn á þing. Engum dylst að ástæðan er þess að flokk­ur­inn sem kennir sér við vinstri áherslur og grænar hefur svikið kjós­endur sínar á flestum póstum með því að styðja Sjálf­stæð­is­flokk­inn í nán­ast öllu. Stærstu og nýj­ustu svikin eru þau að færa Bjarna Bene­dikts­syni for­sæt­is­ráðu­neytið. Mikið þarf til þess að flokk­ur­inn nái að kjafta sig frá þessu. Ár í við­bót á valda­stólum mun aðeins gera illt verra.

Innan VG er ráða­leysi ríkj­andi varð­andi fram­haldið. Þar er þó vissa fyrir því að flokk­ur­inn verði að grípa til rót­tækra aðgerða til að forð­ast skip­brotið. Þar dugar ekk­ert minna en að eiga frum­kvæðið að því að sprengja rík­is­stjórn­ina og ganga til kosn­inga á for­sendum upp­gjörs­ins. Margir eru þess full­vissir að af þessu verði í haust og nýtt þing verði kosið á þessu ári.

Lagt er að Svandísi Svav­ars­dóttur inn­við­a­ráð­herra að taka að sér for­mennsku í flokknum og reyna að stýra flokknum fram­hjá váboðum hins snauða flokks. Svandís var á sínum tíma grjót­hörð á vinstri stefn­unni en hefur hin síð­ari ár dansað hruna­dans­inn í kringum gull­kálf kap­ít­al­ism­ans með Katrínu Jalobs­dóttir og Bjarna. Líklegt þykir að Svandís svari kall­inu og leggi upp í stríð í þeirri veiku von að flokkur sem á sögu allt til Einars Olgeirs­sonar hverfi ekki með skömm af yfi­ir­borði jarðar. Svandís mun að vísu þurfa krafta­verk til að bjarga flokknum en vitað er að hún er til alls vís. Nið­ur­staðan er að kosn­ingar nálg­ast hratt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Vís­inda­menn þróa raf­magns­kamb sem gæti end­ur­vakið hár­vöxt

Hárvöxtur hjá músum sem fengu meðferðina jókst úr um 70 prósentum í nærri 100 prósent á mánuði, samkvæmt rannsókninni.
Pólitík

Ragna og Nanna vilja skoða skyldu mæðra til að taka orlof strax eftir fæð­ingu

Heimur

Leki varpar ljósi á við­skipti Deutsche Bank við Epstein

Innlent

Tinna vill kenna börnum að láta sér leið­ast

Heimur

Banda­ríkin missa stöðu sína sem land án misl­inga

Slúður

Slúður

Neyð­ar­kall Gunnars Smára