Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Þórunn Antonía í atvinnuleit: „Ég er bráðsnjöll“

Þórunn Antonía –
Þórunn Antonía – Mynd: Skjáskot Instagram

Þórunn Antonía, söng- og leik­kona, er í atvinnu­leit.

Það er ekki á hverjum degi sem jafn hæfi­leik­a­rík mann­eskja og Þórunn Antonía óskar eftir vinnu. Hún hefur unnið við næstum allt sem teng­ist kvik­mynda­gerð og tón­list auk þess að vera mennt­aður jóga­kenn­ari. Þórunn setti færslu á Instagram þar sem hún óskar eftir vinnu og telur fram ýmsa kosti við sig og sína fer­il­skrá en DV greindi fyrst frá.

Færslu Þórunnar er hægt að lesa hér fyrir neðan

„Góðan dag­inn alheimur og netheimar, ég ætla að fá mér vinnu þar sem ég er með himin háar og traustar tekjur þar sem ég mun baða börnin mín í dún­mjúku öryggi. Ég er mjög klár í mörgu eins og tón­list og öllu tón­list­ar­tengdu, við­burð­ar­stjórnun, ég er afbragðs penni á íslensku og ensku. Börn elska mig og ég þau. Líka dýr þeim er sama þó það sé gagn­kvæmt eða ekki.

Ég er bráð­snjöll í hug­mynda­smíðum. Skörp orð­heppin, fárán­lega lausna miðuð og hörku­dug­leg. Ég hef unnið við allt frá umönnun á dval­ar­heim­ilum eldri borg­ara, til tón­list­ar­brans­ans á heims­vísu, í for­grunni, bak­grunni, að skrifa um eða syngja og semja.

Ég hef séð um almanna­tengsl og fjöl­miðla fyrir tón­list­ar­há­tíðir. Unnið á lager og séð um props, set design og hoppað í flest störf og hlut­verk innan sjón­varps- og kvik­mynda­gerðar, ljós, bún­ingar, förðun, stílis­er­ing.

Plús allar fast­eignir sem ég hef búið í eða átt hafa endað sem sett í aug­lýs­inga­her­ferðum, sjón­varps­þáttum og bíó­myndum því ég hef dálæti á að blanda saman skemmti­legum litum, munum og list.

Ég hef talað inn á teikni­myndir ásamt sjón­varps þátta skrifum/fram­komu og leikið í leik­ritum, þáttum og bíó­myndum. Ég hef unnið í útvarpi og þyki með þægi­lega og seið­andi rödd. Ég elska menn­ingu, listir og alls­konar fólk. Er menntuð sem jóga­kenn­ari og var í klass­ísku ball­et­námi í 9 ár.

Sem vill gera heim­inn að betri stað, eða bara hvers­dag­inn bæri­legan. Ég er sirka þús­und sinnum sterk­ari en ég lít út fyrir að vera og aðal áhuga­mál mín eru skrítið fólk, seinni heims­styrj­öldin, áföll og úrvinnsla þeirra, allt sem við­kemur húmor, kettir, motown tón­list og Dolly Parton. Vin­sam­leg­ast sendið til­boð sem er ekki hægt að hafna í skila­boðum, takk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar