Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Grimmilegustu, ófyrirleitnustu og síðustu fjöldamorð Íslandssögunnar – Brytjuðu Baskana niður

Það var árið 1615 sem Íslendingar myrtu 31 baskneskan hval­veiðimann á Vestfjörðum, og hefur atburðurinn lengst af hefur verið kallaður Spán­verjavígin, en í seinni tíð Baska­vígin.

Fjölda­morðin virðist ekki vera á meðal þekktustu atburða Íslands. Ekki frekar en sagan af Axlar-Birni, alræmdasta fjölda­morðingja Íslands­sögunnar. Svo virðist sem Íslendingar vilji ekki fjalla mikið um atburði er gætu varpað skugga á sögu Íslands. Hetju­frásagnir og sögur af réttlátri hefnd virðast eiga upp pall­borðið hjá okkur, en ekki atburðir líkt og Baska­vígin og morðæði Axlar-Bjarnar. Hafa slíkar frásagnir afar lítið ratað í kennslu­bækur í gegnum tíðina.

Sumarið 1615 komu hingað til lands rúmlega 80 baskneskir hval­veiðimenn á þremur skipum og stunduðu hval­veiðar í kringum Vestfirði. Þegar þeir ætluðu að halda til síns heima um haustið brotnuðu skipin í óveðri, þrír menn fórust en 83 skip­verjar urðu stranda­glópar á Íslandi. Það er, á þessum tíma, spurning hvernig eigi að fram­fleyta þeim hópi í þessu umhverfi og þar sem fólk rétt skrimti sjálft.

En áður en örlögin grimmilegu litu dagsins ljós skiptu Baskarnir liði og fór hluti þeirra m.a. í Ísafjarðar­djúp. Þar lentu þeir í minni­háttar átökum við innfædda. Í kjölfarið voru Baskarnir allir dæmdir til dauða samkvæmt lögum sem þá voru í gildi um að útlendingar mættu ekki hafa hér vetursetu. Þeir voru eltir uppi og stór hluti þeirra drepinn. Talið er að hinir hafi komist um borð í erlent skip og náð að yfirgefa landið en ekkert er vitað um afdrif þeirra.

Baskarnir voru búnir að sigla hér á slóðum áður; þeir settu upp stórar hval­veiði­stöðvar á Nýfundnalandi strax á sextándu öld; enginn stóðst þeim snúning í viðskiptum með þær afurðir á Evrópu­markaði.

Hval­veiðar voru ábatasöm atvinnu­grein en einnig viðsjár­verð; ekki heiglum hent að starfa við hana.

Baskarnir fóru að venja komur sínar á Íslandsmið snemma á 17. öld. Sumarið 1615 komu þrjú hval­veiðiskip að landi vestur á Ströndum.

Skip­stjórarnir þrír, Martín de Villafranca, Pedro de Aguirre og Esteban de Tellería stigu á land ásamt áhöfnum sínum og römbuðu mitt inn í ólgandi kviku afar flókins stjórnar­fars; gerði það móttökurnar óblíðari en efni stóðu til.

Stjórn landsins var undirokuð af danska kónginum; lituð spillingu innlendrar yfir­stéttar. Átök innan íslensku þjóð­kirkjunnar, milli kaþólskrar trúar og hinnar lúthersku, settu strik í reikniginn. Almenningur lifði við kröpp kjör og hafði áður lent í ljótum rimmum við sjóræningja var skiljanlega ótta­sleginn í garð útlendinga eftir þá reynslu.

Gráan sumardag á Ströndum tók hópur heima­manna með séra Jón Grímsson og Jón lærða Guðmundsson í broddi fylkingar á móti langt að komnum Böskunum.

Jón lærði vildi bjóða gestina velkomna en séra Jón var tortrygginn og herskár í þeirra garð. Baskarnir báru fyrir sig veiði­leyfi sem Ari í Ögri hafði uppá­skrifað og selt þeim dýru verði og með því fengu þeir að slá upp vinnu­búðum; þeir veiddu og verkuðu hvali yfir allt sumarið og versluðu með ýmsan varning við Íslendinga.

Kom á daginn að veiði­leyfið sem Ari ávísaði var veitt án leyfis danskra yfirvalda; þannig að í raun var sjálfur Ari að breiða yfir eigin spillingu og glæpi þegar hann safnaði liði um haustið, og reyndi að drepa alla Baskana.

Voru að lokum 31 baskneskir sjómenn myrtur hér á landi – höggnir eða skotnir.

Margir voru þvingaðir í her Ara og hótað sektum eða öðru verra ef þeir reyndu að skorast undan ægivaldi hans.

Færð og óveður vörnuðu því að Ari næði til eftir­lifandi aðkomu­mannanna og vantaði þó ekki að hann reyndi. Þeir sem komust undan stunduðu sjóinn og drógu björg í bú með marg­víslegum öðrum hætti. Baskarnir voru iðnir og auðguðu umtals­vert bæði mannlíf og efnahag á Vestfjörðum þetta hálfa ár sem þeir neyddust til að þrauka þar í útlegð, sorg, skömm og frost­hörkum.

Þegar fyrsta enska fiskiskipið sást að vori hertóku þeir það til að sigla heim en síðan hefur ekkert spurst til þeirra. Jón lærði var harmi sleginn yfir þessum voða­verkum og skrifaði um þau en fékk bágt fyrir og var sendur í ævilanga útlegð.

Heimildir:

(https://www.ruv.is/frett/sidasta-fjoldamordid-a-islandi)

(https://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/09/15/aestur_mugur_myrti_baskana_2/)

(https://klapptre.is/2016/11/27/morgunbladid-um-baskavigin-oll-kurl-koma-til-grafar)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi