Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Leigubílstjóri í Reykjavík bitinn í hálsinn: „Hann var eins og Hannibal Lecter“

Magnús var bitinn af manni og líkti honum við Hannibal Lecter – Myndin er samsett
Magnús var bit­inn af manni og líkti honum við Hannibal Lecter – Myndin er sam­sett

„Hann var eins og Hannibal Lecter þar sem hann beit í bark­ann á mér og hékk þannig,“ sagði Magnús Sig­urðs­son, leigu­bíl­stjóri, í sam­tali við DV mánu­dag­inn 3. jan­úar 2005 um far­þega sem hann sótti aðfara­nótt sunnu­dags.

Ástæða bits­ins var kostn­aður ferð­ar­innar að sögn Magnúsar en far­þeg­inn vildi aðeins borga 1000 krónur fyrir ferð­ina „Þau höfðu verið í fínu boði og litu vel út, hún var í síð­kjól og þetta var bara venju­leg ferð. Þegar við vorum komin á áfanga­stað við Háteigs­veg kom í ljós að ferðin kost­aði 1340 krónur. Hann réttir fram kortið og segir eins og fólk er byrjað að gera: Taktu þús­und­kall og málið er dautt. Ég gat ekki sætt mig við að hann ákvæði hvað ferðin ætti að kosta.“

„Mér leidd­ist þetta og sagði við hann að ég skyldi bara gefa þeim ferð­ina í nýárs­gjöf en ég gat ekki breytt gjald­skránni. Hann var til­bú­inn að vera með mikil læti út af 340 krónum. Ég straujaði kortið á end­anum og það gekk í gegn og þegar hann stígur út úr bílnum rífur hann með sér dót sem var á milli sæt­anna, penna, loft­mæli og svo­leiðis smá­dót. Ég opna hurð­ina og segi honum að láta ekki svona og þá greiðir hann mér svaka högg á kjammann. Ég sá bara stjörnur og varð dauð­hræddur. Fyrst reif hann gler­augun af og svo sló hann á kjammann,“ sagði Magnús og reyndi að bjarga sér eftir bestu getu og not­aði þyngd sína til að skella mann­inum niður og halda honum í göt­unni.

„Þegar hann lof­aði að hætta þess­ari vit­leysu sleppti ég honum og fæ þá annað högg á kjammann og sé stjörn­u­rnar aftur. Þá stökk ég aftur á hann og rétti kon­unni hans sím­ann til að hún gæti hringt í lög­regl­una. Ég hrópa á hjálp og þá reisir hann sig upp og bítur mig á bark­ann.“ 

„Mér datt líka í hug að hann væri eins og Mike Tyson þegar hann beit eyrað af Holyfi­eld. Hann hangir þarna í háls­inum á mér og ég reyni að rífa mig frá honum og vona að hann taki ekki stykki með sér. Þá heyri ég að lög­reglan er að koma og sleppi honum,“ sagði Magnús um hvernig árásin end­aði.

„Þetta var fólsku­legt hjá honum og eldsnöggt en ég vor­kenni stráknum að hafa látið svona. Ég hélt að þetta væri skikk­an­legt fólk og að það væri hægt að tala við það. Ég hélt af reynsl­unni að ég væri nokkuð mann­glöggur, það hefur dugað hingað til,“ sagði Magnús að lokum en hann sagði einnig frá því að hann væri ýmsu vanur sem leigu­bíl­stjóri og það væri voða­legt hvernig sumt fólk hegð­aði sér gagn­vart leigu­bíl­stjórum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar