Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Fáni Palestínu blaktir við Herðubreið: „Við þurfum stundum að þora en ekki þegja“

Um tveggja mán­aða skeið hefur palest­ínski fán­inn blakt við hún við félags­heim­ilið Herðu­breið á Seyð­is­firði. Margt var um mann­inn á frið­ar­stund sem haldin var síð­ast­lið­inn sunnu­dag í Seyð­is­fjarð­ar­kirkju.

Það komst í frétt­irnar þegar Reykja­vík­ur­borg lét taka niður palest­ínska fán­ann sem ókunn­ugir stuðn­ings­menn þjóð­ar­innar í austri settu upp við Ráðhús Reykja­víkur á degi alþjóð­legrar sam­stöðu með Palest­ínu. Á hinum enda Íslands, hefur fán­inn hins vegar fengið að blakta í um það bil tvo mán­uði, við félags­heim­ili Seyð­is­fjarðar, Herðu­breið.

„Við drógum fán­ann að húni fljót­lega eftir að átökin hófust og við sáum í hvað stefndi.
Að setja hann upp er mín leið til að sýna ein­hvers konar stuðn­ing. Við erum að verða vitni að hræði­legum atburðum. Við þurfum stundum að þora en ekki þegja en manni finnst maður hálf mátt­laus í þessum aðstæðum, sér­stak­lega þegar rík­is­stjórnin talar ekki máli manns,“ segir Sesselja Hlín Jónasar­dóttir, stað­ar­hald­ari í Herðu­breið í sam­tali við Aust­ur­frétt.

Þá seg­ist hún finna fyrir sam­hug vegna fán­ans. „Það var kona hér í bænum sem gaf okkur fán­ann. Við höfum ann­ars ekki fengin nein við­brögð. Ég held við séum öll sam­mála um að það sem er að ger­ast, að heilli þjóð sé útrýmt fyrir framan nefið á okkur, sé hræði­legt.“

Sesselja kom að fjöl­mennri frið­ar­stund í Seyð­is­fjarð­ar­kirkju síð­ast­lið­inn sunnu­dag. „Félagið Ísland-Palest­ína hafði sam­band því það var alþjóð­legur mann­rétt­inda­dagur og mann­rétt­inda­sátt­máli Sam­ein­uðu þjóð­anna er 75 ára í ár. Í Reykja­vík, á Ísafirði og Akureyri voru mót­mæli og við vorum beðin um að vera með. Ég hafði sam­band við prest­inn og við tókum annan pól í hæð­ina þar sem kveikt var á kertum og sögð fal­leg orð. Það var margt um mann­inn því eins og ég segi þá held á við séum öll sam­mála, óháð allri póli­tík, um að ástandið sé hræði­legt. Þegar hafa verið drepin yfir 8.000 börn og 20.000 manns og reiknað með að 1.400 börn deyi milli jóla og nýárs ef átök­unum linnir ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp