Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Hanna var mögulega handtekin daginn áður en hún hvarf

Galla­buxur hennar fund­ust fyrir til­viljun

Sama dag og hin 18 ára Hanna týnd­ist í Udd­evalle í Svíþjóð, var ringluð ung kona hand­tekin í klukku­tíma akst­urs­fjar­lægð frá Udd­evalle, grunuð um til­raun til inn­brots í ein­býl­is­hús. Henni var síðan sleppt síð­degis sama dag í Udd­evalle.

Samkvæmt hverf­is­grúppu Norra Grundsund-svæð­is­ins, þar sem hin unga kona var hand­tekin, var um að ræða Hönnu, sem síð­degis 6. jan­úar, var lýst eftir en hún sást síð­ast við lest­ar­stöð­ina í Udd­evalle. Færsl­unni í hverf­is­grúpp­unni hefur nú verið eytt.

Innbrot daginn áður

Í grein í hverf­is­blað­inu Bohuslän­ingen.se kemur fram að þegar eig­endur ein­býl­is­húss í Lyse, sem er á Norra Grundsund-svæð­inu, þar sem Hanna á ætt­ingja, komu heim síð­degis mánu­dag­inn 5. jan­úar, hafi kjall­ara­dyrnar staðið opnar og rúða í úti­hurð verið brotin. Í sím­tali til lög­regl­unnar klukkan 16:54 þann 5. jan­úar, sögð­ust íbúar hafa komið heim eftir að hafa skroppið frá í stutta stund og fundið gler­brot frá lít­illi rúðu í úti­hurð­inni, sem hafði verið brotin. Þar hafi hamar einnig legið rétt við dyrnar. Þá kom einnig í ljós að kjall­ara­dyrnar voru opnar. Sögðust þau einnig hafa séð konu sem hag­aði sér und­ar­lega og að þau hefðu fengið slæma til­finn­ingu gagn­vart henni og grunað hún gæti tengst mál­inu.

„Við fórum á vett­vang og í nær­liggj­andi svæði gátum við fundið konu sem sam­svar­aði þeirri lýs­ingu sem við höfðum fengið. Konan er á efri ung­lings­árum og er nú grunuð um til­raun til inn­brots,“ sagði Adam Isaksson Samara, upp­lýs­inga­full­trúi lög­regl­unnar. Aðspurður hvort ein­hverju hafi verið stolið úr hús­inu, sagði Adam að það væri eitt­hvað sem væri verið að rann­saka.

Á þriðju­dags­morgun greindi lög­reglan frá því að unga konan hefði verið hand­tekin, grunuð um til­raun til inn­brots.

„Hún hefur verið hand­tekin að beiðni sak­sókn­ara og verður yfir­heyrð í við­ur­vist verj­anda síns,“ sagði Sanna Leissner, rann­sókn­ar­stjóri á vakt hjá lög­regl­unni í vest­ur­hluta Fyrbodal.

Síðdegis á þriðju­dag ákvað sak­sókn­ari hins vegar að láta kon­una lausa.

„En hún er áfram grunuð,“ sagði Jonni And­ers­son, rann­sókn­ar­stjóri á vakt.

Eins og áður segir var því haldið fram í hverf­is­grúppu á svæð­inu að unga konan sem hand­tekin var og síðan sleppt dag­inn eftir, væri stúlkan sem nú er leitað að í Udd­evalle. Lög­reglan hefur ekki stað­fest að um sömu stúlku sé að ræða en á sænsku spjall­síð­unni flashback.org hefur skap­ast gríð­ar­mikil umræða um málið. Þar kemur meðal ann­ars fram að lík­urnar á að tvær ungar stúlkur á svo strjá­býlu svæði kæmust í frétt­irnar fyrir vand­ræði á sama tíma, séu afar litlar. Það er þó auð­vitað ekki ómögu­legt.

Gallabuxur fundust fyrir tilviljun

Mannlíf hefur fjallað um málið en það þykir hið dul­ar­fyllsta. Nokkru eftir að lýst var eftir Hönnu, fund­ust föt í eigu hennar en ljós­mynd af galla­buxum sem hengu á tré var birt í hverf­is­grúppu og spurði sá sem tók mynd­ina hvort ein­hver hefði týnt galla­buxum. Það kom svo síðar í ljós að um væri að ræða galla­buxur Hönnu en fleiri klæði fund­ust á svæð­inu, en ekki hefur verið gefið upp hvaða föt það eru.

Gríð­ar­leg leit hefur staðið yfir af Hönnu en nýlega hætti hópur sjálf­boða­liða að leita þar sem ekki væri taldar miklar líkur á að hún fynd­ist á lífi og því væri um lög­reglu­mál að ræða. Við leit­ina hafa verið not­aðar gröfur og drónar, auk lög­reglu­manna og hunda.

Hér fyrir neðan má sjá mynd­skeið frá leit­inni að Hönnu, tekin á dróna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Vefur Félagsins Ísland-Palestína liggur niðri eftir árásina og óvíst er hvort hægt verði að endurheimta hann.
Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Á bol mannsins stóð „Palletsign Acton“, en lögreglan virðist hafa lesið þar nafn samtakanna Palestine Action.

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr