Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Ísak Harðarson ljóðskáld er látinn

Blessuð sé minning Ísaks
Blessuð sé minn­ing Ísaks

Ljóð­skáldið og rit­höf­und­ur­inn Ísak Harð­ar­son lést á Land­spít­al­anum í gær eftir snörp veik­indi. Ísak var 67 ára gam­all.

Forlagið skrifar svo um Ísak á síðu sinni: Ísak Harð­ar­son er fæddur í Reykja­vík 1956. Hann lauk stúd­ents­prófi 1977 og stund­aði síðan nám við Kenn­ara­há­skóla Íslands auk íslensku­náms við Háskóla Íslands. Fyrsta bók Ísaks, ljóða­bókin Þriggja orða nafn, kom út árið 1982. Í kjöl­farið fylgdu margar fleiri ljóða­bækur, smá­sagna­söfn, skáld­saga og end­ur­minn­inga­bók. Ljóð hans komu einnig út í safn­rit­inu Ský fyrir ský árið 2000. Ísak hefur samið söng­texta og ljóð hans verið flutt með tón­list; ljóð eftir hann hafa einnig birst í erlendum tíma­ritum og sýn­is­bókum. Ísak hefur um ára­bil verið ötull þýð­andi og hefur þýtt fjölda bóka úr ensku og Norð­ur­landa­málum á íslensku. Ljóð og sögur Ísaks hafa frá fyrstu tíð vakið athygli og fengið mikið lof. Hann hefur hlotið verð­laun úr Rit­höf­unda­sjóði Rík­is­út­varps­ins og árið 2011 var tíunda ljóða­bók hans, Rennur upp um nótt, sem kom út 2009, til­nefnd til Bók­mennta­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs.

Illugi Jök­uls­son rit­höf­undur og fjöl­miðla­maður skrif­aði um Ísak á Facebook síðu sinni en þeir þekkt­ust lítið per­sónu­lega en Illugi kveðst hafa borið virð­ingu fyrir honum.

„Ísak Harð­ar­son er dáinn, langt fyrir aldur fram. Hann kom fram á sjón­ar­sviðið sem skáld 1982 þegar hann fékk við­ur­kenn­ingu AB fyrir ljóða­bók­ina Þriggja orða nafn. Þar í voru þessi tvö ljóð sem birt­ust í Lesbók Morg­un­blaðs­ins þá um haustið, held ég þau fyrstu sem birt­ust eftir hann í blaði eða tíma­riti. Mér finnst ein­hvern veg­inn eins og þau feli, hvort á sinn hátt, í sér svo margt um það sem á eftir fór. Ísak var afar gott skáld og ég votta alla mína samúð fólki hans og ást­vinum. Ég þekkti hann ósköp lítið per­sónu­lega en bar virð­ingu fyrir honum og fannst alltaf eins og orðið „ein­arður“ hefði verið búið til um hann.“

Mannlíf sendir fjöl­skyldu Ísaks og vinum inni­legar sam­úð­ar­kveðjur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

„Lífið er svo miklu betra með þér“
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu