Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Stór­söngv­ari selur í Laug­ar­dalnum

Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Fólk

Heitustu jóla­gjaf­irnar 2026

Fólk

Katla stofnar fyr­ir­tæki með móður sinni

Innlent

Séra Hjördís stóð með for­eldrum Bryn­dísar Klöru á þeirra erf­ið­ustu stundum

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Minning

Borgþór Vest­fjörð Kjærne­sted er fall­inn frá

Heimur

Gam­an­leik­ar­inn Anthony Clark lát­inn

Innlent

Eft­ir­litið fór fram þrátt fyrir meint veik­indi hús­ráð­anda

Athafnamaður braust inn í íbúð vegna „arabatónlistar“ og hundakúks

Maðurinn var eitt sinn skráður sem for­maður hjá félagi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík

Málið var rekið í Reykjavík
Málið var rekið í Reykja­vík Mynd: Víkingur

Athafna­maður hefur verið dæmdur í fang­elsi vegna ýmissa brota en málið var tekið fyrir í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

Maðurinn var ákærður fyrir að hafa fimmtu­dag­inn 23. nóv­em­ber 2023, ruðst í heim­ild­ar­leysi inn á heim­ili hjóna og ekki farið þaðan fyrr en heim­il­is­fað­ir­inn ýtti ákærða út úr íbúð­inni. Þá var hann einnig ákærður fyrir að hóta kon­unni á sama heim­ili og hann braust inn í með því að hrópa að henni: „Ef þú lætur ekki stól­inn vera þá tek ég af þér haus­inn“ en atvikin gerð­ust ekki á sama dag.

Sömu­leiðis var mað­ur­inn ákærður fyrir að hafa þrí­vegis keyrt undir áhrifum áfengis, fíkni­efna og/eða slævandi lyfja. Þá hátt­semi ját­aði mað­ur­inn en neit­aði sök að hafa hótað kon­unni og brot­ist inn í íbúð­ina.

Í dómnum er greint frá því að ljóst sé að miklar deilur hafi verið milli manns­ins og fólks­ins í íbúð­inni en öll bjuggu þau í sama fjöl­býl­is­hús­inu.

Hundakúkur og arabatónlist

Í dómnum segir konan að athafna­mað­ur­inn hafi ógnað sér og hund­unum hennar og í kjöl­farið elt hana að úti­dyra­hurð hennar þar sem hann hafi ausið yfir hana sví­virð­ingum. Hann hafi í kjöl­farið ruðst inn í íbúð hennar og yfir­gaf athafna­mað­ur­inn ekki íbúð­ina fyrr en eig­in­maður kon­unnar ýtti mann­inum út. Þau hafi í kjöl­farið hringt í lög­regl­una.

Eins og áður segir neit­aði athafna­mað­ur­inn sök en hann sagð­ist vissu­lega hafa rætt við kon­una og sagt henni að hirða upp skít sem hund­arnir hennar hafa skilið eftir. Kvartaði athafna­mað­ur­inn og eig­in­kona hans einnig við lög­reglu um að hunda­eig­end­urnir væru sífellt að spila „arabatón­list“ án þess að það sé útskýrt í dómnum hvað það nákvæm­lega þýði.

Annar brota­þoli sagði fyrir dómi að „síð­ustu fjögur ár eig­in­lega hafa verið hræði­leg fyrir þau þar sem þau hafi þurft að búa við stöðugt umsát­ursein­elti og ógn­anir heima fyrir. Kvaðst vitnið eiga 10 kærur hjá lög­reglu fyrir utan þau tvö mál sem komin væru í ákæru. Ein­hverju sinni hafi verið bor­inn eldur upp að hurð­inni inn í íbúð þeirra B, gang­arnir hafi verið reyk­fylltir og gluggar skrúf­aðir fastir þannig að ekki væri hægt að lofta út. Eig­in­kona ákærða hefði ein­hverju sinni ráð­ist á hurð­ina inn í íbúð vitn­is­ins eftir barna­af­mæli með hamri. Þetta væri búið að vera ótrú­lega umfangs­mikið. Ekki væri hægt að eiga nein sam­skipti við ákærða og eig­in­konu hans nema í gegnum lög­fræð­inga.“

Á end­anum var athafna­mað­ur­inn sýkn­aður fyrir hótun en dæmdur fyrir hús­brot og umferð­ar­laga­brotin.

Var hann dæmdur í þriggja mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi og sviptur öku­rétti í fimm ár,

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl