Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Jón segir sögur rangar af válegu slysi þar sem skip fórst: „Við virðumst hafa verið ósjálfbjarga“

Jón Ragnarsson, vélstjóri á skipinu Svani sem fórst í janúar árið 1969, segir sögu­sagnir af slysinu ekki gefa rétta mynd af því sem í raun og veru gerðist. Um borð í skipinu voru sex skip­verjar og björguðust þeir allir. Jón hand­skrifaði sína upplifun á þessum örlaga­ríka degi, þegar 20 ár voru liðin frá slysinu.

Brot úr skrifum Jóns Ragn­ars­sonar sem færð hafa verið á tölvu­tækt form.

 Svanur var 101 tonna stálskip sem smíðað var í Austur-Þýska­landi. Sjóferðin örlaga­ríka hófst að kvöldi til þann 28.janúar 1969 frá Súðavík.

„Við lögðum af stað í þessa sjóferð kl 20:20 þann 28.janúar 1969 en það var tíminn yfirleitt frá Súðavík. Þá var svokallaður róðratími hafður,“ skrifar Jón

Hann segir veðrið hafa verið fagurt en spáin lofaði ekki góðu. Stormspá var fyrir Vestfjarðarmið um morguninn 29.janúar.

Jón var ósáttur með frásagnir af slysinu, það hafi ekki verið talað við alla um borð heldur einungis Grétar Örnólfsson, skip­stjóra skipsins. Hann nefnir bækurnar „Spaugsami vorfuglinn“ og „Þrauta­góðir á rauna­stund“. Sú fyrr­nefnda eru endur­minningar Þrastar Sigtryggs­sonar sem þá var skips­herra á varð­skipinu Þóri og var meðal þeirra sem björguðu skip­verjum Svans. Sú síðarnefnda er samansafn sagna af björgunar­aðgerðum á sjó, hún kom út í nítján bindum og var sagan af slysför Svans þar á meðal.

„Greinilegt var að engan var talað við nema Grétar skip­stjóra og allt haft eftir honum. Nú vil ég taka það fram að ég ætla ekki að gera lítið úr hans hlut, en við vorum fimm með honum og við virðumst hafa verið ósjálfbjarga sbr. bók Þrastar skipherra. Þetta er aðeins brot af ósannindum sem eru í þessum greinum enda haft eftir einum manni og ætla ég ekki höfundum þess bóka svo slæmt að þeir segðu ósátt viljandi eða skálduðu upp þessar sögur en þeir hefðu mátt kynna sér málið betur og taka með alla skipbrots­mennina, þá hefði allt komið betur í ljós.“

Hann segir Grétar og annan skipverja hafa lagst til svefns, hinir fjórir stóðu saman í stýris­húsinu. Þar sáu þeir að vindur og sjór fór versnandi. Illa sást út vegna ísingar og móðu á glugga.

„Þeir kölluðu „brot!“ og ég sló strax af og sneri upp í, brotið leið hjá. Skömmu síðar kalla þeir aftur en þeir eru ekki fyrr búnir að sleppa orðinu þegar það skellur á bátnum af ógurlegum krafti. Brotið hreinlega kastaði bátnum á hliðina og keyrði hann niður, ég setti á fulla ferð og ætlaði að keyra bátinn upp en þá sá ég að vélin var stopp. Allt gerist þetta á svip­stundu og mér var hugsað að svona hafi þeir allir farið.“

Við fyrra brotur hafði kokkur skipsins, Þórður Sig, kastast aftur fyrir sig og slasast á öxl. Skipið lá á hliðinni, skips­verjarnir náðu að klifra út og upp á stýris­húsið. Grétar skip­stjóri var þarna vaknaður og kominn fram, Jón minnir hann á neyðar­talstöðina. Grétar rétti Jóni talstöðina og sendi hann umsvífalaust út neyðar­kall. Jóni datt þá í hug að telja mennina en sá að einn þeirra vantaði. Kjartan, bróðir Jóns, var enn inni í bátnum. Jón skipaði Grétari að snúa við, sem hann gerði. Kjartan var aðeins 15 ára gamall en komst upp úr bátnum.

„Finnst mér Kjartan hafa sýnt ótrúlegan kjark og dugnað við að komast upp úr bátnum við þessar aðstæður. Það var óskemmtilegt að lenda í svona atviki vakandi en það hlýtur að vera martröð að vakna við þessar aðstæður í kolsvarta­myrkri niðri í káetu.“

Mennirnir komust í gúmmí­bátinn en veðrið var enn slæmt. Þakið á stýris­húsinu fauk af og lenti á björgunar­bátnum sem varð til þess að hann lagðist niður. Annar gúmmí­bátur var bundinn við skips­hrakið og reyndu þeir að ná til hans. Það gekk erfiðlega.

„Á einni öldunni er Svanur lyftist festist ég undir ljós­kastara sem var framan á brúnni og dróst í kaf. Mér fannst ég vera í óratíma í kafi en mér tókst að halda mér með fótunum í gúmmí­bátinn og losa mig frá ljósinu.“

Jón á yngri árum.

Áfram héldu mennirnir að reyna að ná til heila gúmmí­bátsins, á einum tíma­punkti hékk yfir þeim bali fullur af lóðum. Að lokum náðu Grétar og Jón til gúmmí­bátsins.

„Minnist ég þess að Grétar skip­stjóri sagði við mig þegar við vorum komnir yfir í seinni bátinn „eigum við ekki að fara um borð í Svan og reyna að bjarga honum?.“ Ég sagði að hann mætti fara en ég færi ekki. Ekki bættu þessi orð traust mitt á honum, ég sá að hann hafði fengið áfall og lái honum það enginn“

Jón sendi út annað neyðar­kall, hann fékk svar en það heyrðist dauft. Eftir nokkrar tilraunir kom í ljós að á hinni línunni voru skipsmenn Sólrúnar frá Bolungarvík.

„Ég spurði nú Grétar hvort hann vildi ekki taka við talstöðinni en hann neitaði því og bað mig um að vera með hana áfram, sem ég gerði. Ég hafði stöðugt samband við Sólrúnu.“

Hálfdán Einarsson, skip­stjóri á Sólrúnu, lagði hart að sér við að finna mennina, sem hann að lokum gerði. Hann var við björgunar­bátinn þar til varð­skipið kæmi, það væri betur búið til að taka við þeim. Það tók varð­skipið 20 mínútur að finna mennina.

„Ég sagði við strákana: „Við skulum láta Þórð fara fyrst vegna þess að hann er slasaður“ og var það samþykkt. Grétar var fyrsti maðurinn sem fór úr gúmmí­bátnum og um borð í varð­skipið, þó annað hafi verið talað um. Ég sagði við félaga minn: „Ég skal fara síðastur fyrst hann var fyrstur“ og gerði það. Ég fann að ég gæti ekki gengið vegna dofa í fótunum og vorum við allir orðnir þrekaðir af kulda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi