Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Björg í Garðabæ um milljarða samning bæjarstjóra við sjálfa sig: – „Ég hef fylgt hæfisreglum“

Björg Fenger, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar: „Ég hef ávallt fylgt hæfisreglum sveitarstjórnarlaga.“
Björg Fenger, for­seti bæj­ar­stjórnar Garða­bæjar: „Ég hef ávallt fylgt hæf­is­reglum sveit­ar­stjórn­ar­laga.“

Meirihlutinn í bæjar­stjórn Garðabær samþykkti nýverið að veita samning án útboðs til fyrir­tækis í eigu forseta bæjar­stjórnar Garða­bæjar, Bjargar Fenger.

Mannlíf fjallaði um málið og greinina sjá hér.

Fyrir­tækið sem um ræðir er Terra – áður Gáma­þjónustan –  og var samningurinn um leigu og forkaups­rétt á einingum fyrir gáma­leikskóla.

Samkvæmt heimildum Mannlífs er virði samningsins tæpur milljarður króna.

Mannlíf sendi bæjar­fulltrúum Sjálfstæðis­flokksins í Garðabæ – bæjar­stjóra og upplýsingar­fulltrúa bæjarins og fleiri aðilum sem tengjast málinu – ítarlegan spurninga­lista um málið með vísun til upplýsinga­laga nr. 140/2012.

Gunnar Einarsson bæjar­stjóri Garða­bæjar er í sumarfríi og hefur hann ekki tjáð sig beint um málið þó eftir því hafi verið leitað.

Aðeins tveir aðilar tengdir málinu hafa svarað fyrir­spurn Mannlífs um málið, en hafa ekki enn svarað áður­nefndum spurningum sem Mannlíf sendi.

Þeir tveir aðilar sem svör hafa borist frá eru Guðjón Erling Friðriksson bæjar­ritari og Björg Fenger forseti bæjar­stjórnar Garða­bæjar.

Svar Guðjóns er í raun svar fyrir hönd Gunnars Einars­sonar bæjar­stjóra, sem eins og áður sagði, er nú í sumarfríi.

Guðjón Erling Frið­riks­son bæj­ar­rit­ari Garða­bæjar.

Þetta kemur fram kemur í svari Guðjóns: „Að beiðni bæjar­stjóra er ég að undirbúa að svara fyrir­spurn þinni varðandi leigu á færanlegum einingum fyrir leikskóla fyrir börn í Garðabæ.“

Gunnar Ein­ars­son bæj­ar­stjóri Garða­bæjar er í sum­ar­fríi.

Guðjón segir enn fremur:

„Við munum að sjálfsögðu svara fyrir­spurninni en mér finnst samt strax rétt að taka fram að vegna sumar­leyfa margra starfs­manna að þá er líklegt að við náum ekki að svara og afhenda gögn innan þess frest sem upplýsingalög kveða á um sem ég held að sé sjö dagar. Við munum leggja áherslu á að svara fyrir­spurninni eins fljótt og við mögulega getum.“

Björg Fenger sagði í svari sínu að „þar sem ég hef ekki haft neina aðkomu að samninga­gerð um leigu á einingum fyrir leikskóla sem þú vísar til þá get ég ekki svarað spurningum þínum. Ég bendi þér á að hafa samband við bæjar­stjóra Garða­bæjar til að fá svör við spurningunum.“

Björg Fenger á stóran hlut í fyr­ir­tæk­inu Terra, áður Gam­aþjón­ustan.

Björg vill „þó nefna af þessu tilefni að ég hef ávallt fylgt hæfis­reglum sveitar­stjórnar­laga og mun að sjálfsögðu víkja af fundi þegar umræddur samningur kemur á borð bæjar­stjórnar.“

Samkvæmt heimildum Mannlífs er mikill titringur innan stjórn­sýslu Garða­bæjar og líka á meðal bæjarbúa, en heimildar­maður Mannlífs innan stjórn­sýslunnar sem vildi ekki koma fram undir nafni sagðist varla hafa trúað því að áður­nefndur samningur hafi verið gerður; hagsmuna­tengslin séu svo ótrúlega áberandi og augljós – nánast æpandi.

Mannlíf mun að sjálfsögðu fylgja málinu eftir og bíður nú svara frá bæjar­stjóra Garða­bæjar, Gunnari Einars­syni, um það hvort samningur þessi sé litaður af áður­nefndum hagsmuna­tengslum eða ekki.

Nýverið fjallaði Mannlíf um „Milljarða­höllina“ svokölluðu í Garðabæ í tveimur fréttum sem má sjá hér  og hér.

Það gengur því á ýmsu um þessar mundir hjá meirihlutanum í Garðabæ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim