Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Hótað lífláti og nauðgun vegna ummæla um Kópasker og Raufarhöfn

Þórdís Björk Þorfinnsdóttir. Mynd / Hákon Davíð Björnsson
Þórdís Björk Þor­finns­dóttir. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Leik­konunni Þórdísi Björk Þorfinns­dóttur var hótað lífláti og nauðgunum vegna ummæla hennar um veðurfar á Kópaskeri og Raufar­höfn. Leikkonan ætlar að kæra hótanirnar til lögreglu.

„Ég er ýmsu vön þegar kemur að gagnrýni en þær hótanir sem mér hafa borist vegna þessa máls eru viðbjóðslegar. Það er eiginlega óhugnanlegast að sumar grófustu hótanirnar voru frá einstaklingum undir fullu nafni,“ segir Þórdís Björk Þorfinns­dóttir, leikkona og meðlimur í leik­hópnum Lottu, í samtali við Frétta­blaðið, um morð­hótanir og hótanir um að vera nauðgað vegna ummæla sem hún lét falla um veður­farið á Kópaskeri og Raufar­höfn. Bárust henni á annan tug skilaboða frá nafn­greindu fólki og ætlar hún að kæra hótanirnar til lögreglu.

„Það er eig­in­lega óhugn­an­leg­ast að sumar gróf­ustu hót­an­irnar voru frá ein­stak­lingum undir fullu nafni.“

Leik­hópurinn Lotta, sem hefur verið að ferðast um landið með barna­leikrit um Bakka­bræður, var staddur á austan­verðu landinu um helgina og kom við á Raufar­höfn og Kópaskeri. Þar lét Þórdís Björk eftir­farandi orð falla á Instagram: „Jæja þá erum við búin að koma á helv.. Kópasker. Keyrðum á Kópasker og Raufar­höfn bara til að geta krossað það út af listanum, mæli alls ekki með að koma hingað, bara alls ekki gera það.“

Sjá einnig: Kolbrún segir ummæli Þórdísar lýsa hroka

Í samtali við Frétta­blaðið segir Þórdís, sem hafði líka fjallað með jákvæðum hætti um staðina tvo og þar á meðal hrósað máltíð á Raufar­höfn og hrósað Heima­skauta­gerðinu á staðnum, að um brandara hafi verið að ræða en hann hafi mislukkast. „Það sýnir sig kannski best að brandari hafi mislukkast þegar maður þarf að útskýra hann og samhengið. Ég hafði rætt við vini mína um að ég hlakkaði til að skoða þessa bæi í fyrsta sinn, en svo tók ógeðslegt veður á móti okkur. Hitinn rétt yfir frost­marki og hvínandi rok og rigning.”

Skájskot af ummælunum fór í dreifingu á samfélags­miðlum og ollu fjaðra­foki á Facebook-síðu Lottu. Voru þau fordæmd og auk þess bárust Þórdísi Björk fyrr­nefndar hótanir um morð og nauðganir.

„Þessi tvö skjáskot í engu samhengi litu mjög illa út. Að einhverju leyti er það ósann­gjarnt, þetta er eins og að taka langa málsgrein úr bók, en svo áttaði ég mig á því að þetta virtist raun­verulega særa fólk og það þótti mér afar leitt,“ segir Þórdís, sem baðst afsökunar á færslunni og Leik­hópurinn Lotta líka.

Í samtali við Frétta­blaðið segir Þórdís að fyrr­nefndar hótanir megi ekki líðast og því muni hún kæra þær til lögreglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim