Albert Guðmundsson, leikmaður Genoa, er ekki í nýjum landsliðshópi.
Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson er ekki í nýjum landsliðshópi Íslands í fótbolta en hópurinn var kynntur fyrr í dag. Albert var nýverið kærður fyrir kynferðisbrot og banna reglur KSÍ að hann sé valinn til að spila fyrir hönd Íslands. Landsliðsþjálfari Íslands, Age Hareide, svaraði spurningum blaðamanna um Albert á blaðamannafundi fyrr í dag.
„Ég hef talað við leikmanninn og útskýrt fyrir honum reglurnar. Við þurfum að líta í aðrar áttir án Alberts. Hann veit hvernig reglurnar eru og verður ekki valinn í þessa tvo leiki,“ sagði Hareide úm málið.
„Albert skilur reglur sambandsins. Ég er vonsvikinn að svona skuli koma upp en þetta er ekki í mínum höndum. Ég talaði við leikmennina í kvöldverðinum eftir leikinn á móti Portúgal og hrósaði þeim fyrir þeirra vinnu. Albert var einn af þeim sem lagði mest á sig fyrir liðið. Ég sagði við hina leikmennina að við þurfum að einbeita okkur að fótboltanum og við þurfum að leyfa lögreglunni að rannsaka málið. Það má ekki hafa áhrif á okkur. Við þurfum að finna nýja leikmenn í staðinn.“
„Þetta er ekki í mínum höndum, eins og ég segi. Ég er ráðinn til að vera þjálfari og ég einbeiti mér að fótboltanum. Ég fylgi reglum sambandsins. Ég hringdi í Albert og sagði honum frá stöðunni. Hann sætti sig við það,“ sagði Hareide.
Fótbolti.net greindi frá.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir