Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Borgarfulltrúarnir fengu himinháa dagpeninga í Bandaríkjunum: „Mér fannst það of mikið“

Dagur B. Eggertsson.
Dagur B. Egg­erts­son.

Borg­ar­full­trúar Reykja­vík­ur­borgar fengu 82.720 krónur í dag­pen­ing í ferð þeirra til Portland og Seattle í Banda­ríkj­unum.

Myndir hafa birst úr ferð borg­ar­full­trúar Reykja­vík­ur­borgar til Portland og Seattle, á sam­fé­lags­miðlum en ferðin var farin dag­ana 20 – 24 ágúst. Samkvæmt skýrslu frá borg­inni voru áherslur heim­sókn­ar­innar „sjálf­bærni, nýsköpun og rann­sóknir. Hvernig leiða megi saman
þekk­ingu og atvinnu­líf og hvernig læra megi af stefnu stjórn­valda í Portland og Seattle á því
sviði.“ Þá segir enn­fremur í skýrsl­unni: Þessar borgir hafa und­an­farin ár staðið fram­ar­lega á sviði háskóla-, nýsköp­unar- og tækni­um­hverfis. Stjórn­völd þar hafa í sam­vinnu við atvinnu­lífið byggt upp þekk­ing­ar­sam­fé­lag með alþjóða­sam­starf að leið­ar­ljósi með áhuga­verðum árangri á sviði sam­göngu­mála, hús­næð­is­mála, lofts­lags­mála og atvinnu­borg­ar­þró­unar. Auk þess hefur Seattle tek­ist vel upp við að byggja upp hafn­ar­svæði og spenn­andi áfanga­stað fyrir ferða­menn.

Þeir sem fóru í ferð­ina voru eft­ir­far­andi: Borg­ar­stjóri og aðstoð­ar­maður hans, borg­ar­ráð, borg­ar­rit­ari, sam­skipta­stjóri, teym­is­stjóri atvinnu- og borg­ar­þró­un­arteymis, sem og sendi­nefnd á vegum Íslands­stofu en hún fór með til Seattle.

Mannlíf ræddi við Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur, borg­ar­full­trúa Sós­í­alista­flokks­ins, sem fór í ferð­ina, en sam­kvæmt henni fengu borg­ar­full­trú­arnir alls 82.720 krónur í dag­pen­ing í ferð­inni.  „Við fórum til Portland og Seattle. Það sem var inni­falið var flug, gist­ing og dag­pen­ingar. Við fengum dag­pen­ing upp á 82.720 krónur.“

Sagði Sanna að henni hefði fund­ist upp­hæðin of há. „Mér fannst það of mikið og sagði að ég þyrfti ekki á þessu að halda og reyndi að sleppa því að fá það greitt en ég mátti ekki afsala mér greiðslum. Þurfti aðeins að hugsa hvernig það væri best að ráð­stafa þessum fjár­munum og end­aði á því að gefa það til ann­arra þar sem það kæmi sér vel.“

Þá sagði Sanna að hún hefði upp­götvað að þau sem fóru í ferð­ina fengu Saga Club punkta frá Icelandair. „Svo kemur í ljós að við fáum saga club punkta á kenni­tölu okkar frá Icelandair, vegna flugs­ins. Hafði líka sam­band við skrif­stofu borg­ar­stjórnar vegna þess en það er ekki hægt að aftengja punkt­ana frá kenni­tölu vegna reglna Icelandair.“

Í ferð­inni var gist á tveimur hót­elum sam­kvæmt Sönnu, einu í Portland og öðru í Seattle. „Á hót­el­inu í Portland beið okkar fín gjöf frá hót­el­inu fyrir hót­el­gesti, sem inni­hélt m.a. gjafa­bréf fyrir sól­gler­augum að and­virði 149 evra. Við þurftum ekki að greiða fyrir að prófa raf­hjól, þau sem tóku á móti okkur og kynntu raf­hjólin fyrir okkur í Portland, sáu um það.“

Aðspurð um það hver hefði greitt fyrir mat starfs­mann­anna í ferð­inni sagði hún að eitt kvöldið hafi þau farið út að borða en það hafi verið greitt af „aðilum í Portland“, einn hádeg­is­verður hafi borg­ar­full­trú­arnir ekki þurft að greiða fyrir en tók fram að hún vissi ekki hver hefði borgað mat­inn. „Svo voru einnig tvær mót­tökur þar sem það voru smá­réttir og drykkir sem við greiddum ekki fyrir. Fyrir utan það greiddu borg­ar­full­trúar fyrir sinn mat.“

Bætti Sanna einnig við að þau hefðu fengið minja­gripi að gjöf. „Við fengum einnig minja­gripi frá Portland, hluti eins og der­húfu, glas og nælur. Svo greiddum við ekki fyrir rútu­ferð­ina frá Portland til Seattle en ég er ekki viss hver sá um þann kostnað.“

Sanna Magda­lena sagði að farið hafi verið í ferð­ina „til að sjá hvað megi læra af öðrum borgum (en þess má geta að Reykja­vík­ur­borg og Seattle gerðu með sér syst­ur­borg­ar­samn­ing árið 1986).“ Sanna hélt áfram: „En mér finnst áherslur ferð­ar­innar hafa breyst, þar sem að mínu mati er það sem ég tók mest úr ferð­inni, sam­göngu­mál, skipu­lags­mál, hvernig stjórn­sýslan er og mál­efni heim­il­is­laus fólks, þó að vissu­lega hafi verið fjallað um atvinnu­mál og þá sér­stak­lega hvernig þessar hafn­ar­borgir eru að haga sínum málum. Það var átak­an­legt að sjá heim­il­is­leysið og neysl­una sem var sér­stak­lega áber­andi í Portland og það sýnir hvað það er mik­il­vægt að bjóða upp á félags­legar lausnir varð­andi hús­næði og tryggja þarf að and­legur stuðn­ingur sé til staðar og góð heil­brigð­is­þjón­usta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar