Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands

Íslensk fyr­ir­tæki sækja fram

Milljónastyrkir í nýsköpun
Millj­óna­styrkir í nýsköpun Mynd: Ja.is

Íslensk þekk­ing á sviði grænnar orku og tækni mun á næst­unni nýt­ast við að knýja áfram sjálf­bæra fram­leiðslu í Brasilíu og Indlandi. Fyr­ir­tækin CRI og Verkís hafa und­ir­ritað samn­inga um millj­óna­styrki úr Heims­mark­miða­sjóði atvinnu­lífs­ins, en sjóðnum er ætlað að hvetja íslenskt atvinnu­líf til virkrar þátt­töku í þró­un­ar­sam­vinnu.

Þetta er í fjórt­ánda sinn sem styrkjum er úthlutað úr sjóðnum, en strangt skil­yrði er að fyr­ir­tækin sjálf leggi til mót­fram­lag sem nemur að lág­marki helm­ingi af heild­ar­kostn­aði við verk­efnin.

Grænt metanól í stað jarðefnaeldsneytis í Brasilíu

Stærri styrk­inn, alls 10 millj­ónir króna, hlýtur tækni­fyr­ir­tækið CRI hf. fyrir verk­efnið „Frá losun til lausnar“.

Sjónum verður beint að Norður- og Norð­austur-Brasilíu, svæði sem á undir högg að sækja hvað varðar iðn­að­ar­upp­bygg­ingu, tekjur og aðgengi að sér­hæfðri þekk­ingu. Mark­miðið er að leggja grunn að bygg­ingu verk­smiðja sem munu umbreyta koltví­sýr­ingi frá iðn­aði eða lífmassa­úr­gangi í grænt met­anól með hjálp end­ur­nýj­an­legrar orku.

Þetta vist­væna elds­neyti (raf- og líf­met­anól) á að koma í stað hefð­bund­ins jarð­efna­elds­neytis í sam­göngum og iðn­aði á svæð­inu, sem getur haft gríð­ar­legan lofts­lags­á­vinn­ing í för með sér til lengri tíma litið.

Ræktað allt árið í Indlandi með íslenskri jarðhitaþekkingu

Verk­fræði­stofan Verkís hf. hlýtur tæp­lega 4,5 millj­ónir króna til að fram­kvæma hag­kvæmni­at­hugun á upp­bygg­ingu til­rauna- og fræðslu­mið­stöðvar fyrir lofts­lags­þolna gróð­ur­húsa­ræktun í Noida, skammt frá Nýju-Delí á Indlandi.

Verk­efnið byggir á íslenskri sér­þekk­ingu á nýt­ingu jarð­hita, en hönn­unin verður aðlöguð að stað­háttum í Noida þar sem not­ast verður við varma­dælur og sól­ar­orku. Tak­markið er að gera land­bún­að­ar­fram­leiðslu mögu­lega allt árið um kring, óháð öfgum í veð­ur­fari og breyti­legum lofts­lags­skil­yrðum.

Mið­stöðin á jafn­framt að þjóna sem lif­andi fyr­ir­mynd fyrir sam­bæri­lega upp­bygg­ingu á jarð­hita­svæðum víðs vegar um Indland í fram­tíð­inni.

Lesa má nánar um Heims­mark­miða­sjóð atvinnu­lífsins á vef sjóðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu