Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Thelma „Trunt“ varar börn við TikTok „trendum“: „Aldrei þiggja far með ókunnugum“

Thelma Rut Elíasdóttir
Thelma Rut Elí­as­dóttir Mynd: TikTok-skjáskot

Thelma Rut Elíasdóttir TikTok-stjarna varar börn við að þiggja far með ókunnugum.

Hin 19 ára TikTok-stjarna Thelma Rut eða Thelma Trunt eins og hún kallar sig gjarnan, er með 25.700 fylgjendur en margir þeirra eru börn. Í gær birti Mannlíf frétt af meintum leik hjá ungum drengjum þar sem þeir mönuðu hvorn annan upp í að biðja ókunnuga um far. Var þetta haft eftir konu sem skrifaði um málið á Facebook. Hafði konan áhyggjur af því að þessi leikur væri runninn undan rifjum TikTok en þar má finna ógrynni af svokölluðum „trendum“ eða tísku­bólum í formi leikja eða áskorana, misgáfulegra.

Dren­girnir höfðu svo samband við Mannlíf og sögðust aðeins hafa verið að grínast. Thelma Rut hafði áhyggjur af málinu og birti myndskeið á TikTok sem hægt er að horfa á hér fyrir neðan. Þar brýnir hún fyrir ungum fylgjendum sínum að þiggja aldrei far með ókunnugum.

Thelma sagði í samtali við Mannlíf að oft sé talað illa um TikTok-miðilinn en lítið talað um þá sem vilja bæta og breyta TikTok-samfélaginu. Sagðist hún hafa séð grein Mannlífs um að dren­girnir segðust aðeins hafa verið að grínast en að þrátt fyrir það verði að brýna fyrir börnum að fara varlega þegar snýr að „trendum“.

„Mér finnst þetta vera mál sem mætti fjalla meira um þar sem mikil hætta er á að börn fari að fylgja TikTok trendum eftir,“ sagði Thelma Rut við Mannlíf.

Í mynd­bandinu hér fyrir neðan brýnir Thelma Rut fyrir börnum að hlusta á foreldra sína og „aldrei þiggja far með ókunnugum“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi