Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Krakkar beðnir um að skrá sig á Þorrablótsvakt FH: „Þessi skilaboð fóru í vitlausa grúppu“

FH
FH

Foreldrum barna sem stunda íþróttir í 3. flokki hjá Fimleika­félagi Hafnar­fjarðar brá í brún er skilaboð bárust frá félaginu í gegnum smáforritið Sportabler.

Ábending um málið barst Mannlífi í dag og hafði sendandinn áhyggjur af málinu. Skila­boðin, sem send voru af Gunnari Inga Leifssyni sölu- og markaðs­stjóra knattspyrnu­deildar FH en í þeim voru þau sem skila­boðin fengu, beðin um að skrá sig á vakt á Þorra­blóti félagsins sem haldið verður föstu­daginn næst­komandi. Var beiðnin send á krakka í 3. flokki en þau eru 14 og 15 ára. Eftir­farandi skilaboð voru send:

„Góðan daginn,
Föstu­daginn 13.janúar er Þorrablót í Krikanum. Hér er ég með fjáröflun fyrir þá fyrstu sem skrá sig.
Þið merkið ykkur í það box sem þið viljið. Tíma­setningar standa fyrir ofan hvort box.
Vaktin 18:45-01:30 er flæðandi, ég þarf 4-5 alveg í byrjun en svo þurfa alltaf að vera 2 á svæðinu milli 20:30 og 00:30. Svo þurfa að vera 4-5 aftur klukkan 00:30. Ég ræði betur við þá sem skrá sig þar.
Skrá sig sem fyrst.
Ef það fyllist ekki í þetta fyrir mánudaginn, þá vel ég leikmenn á vaktirnar. Allt fyrir félagið.“

Mannleg mistök

Mannlíf sendi Gunnari Inga tölvupóst þar sem hann var spurður hvort þetta þætti eðlilegt.

„Vinnan sem um ræðir er á fimmtudeginum frá klukkan 14:00-19:00. Undir­búningur fyrir Þorrablót,“ svaraði Gunnar en er honum var bent á að samkvæmt skila­boðunum hafi verið átt við föstudags­kvöld og nótt svaraði hann aftur: „Þessi skilaboð fóru í vitlausa grúppu.“

Er Mannlíf sendi enn einn póstinn og spurði hvert skila­boðin hafi átt að fara hringdi Gunnar í miðilinn og sagði að það hafi aldrei börn átt að vera á þessum vöktum, heldur full­orðnir meðlimir FH. „Bæði fór vitlaust plan út og á vitlausa grúppu,“ sagði hann og bætti við að hann hefði sent út leið­réttingu um leið og mistökin uppgötvuðust.

Það virðist því um mannleg mistök að ræða og foreldrar krakka í FH geti andað léttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi