Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Hundurinn sem hrapaði

Rakkinn Tinni.
Rakkinn Tinni. Mynd: Reynir Traustason

Það mátti heyra niðurbælt skelfingaróp frá göngu­fólkinu sem horfði á hundinn hrapa um 10 metra fram af hamri. Dýrið lenti á bakinu með dynk og kastaðist örlítið upp aftur eins og hálf­vindlaus bolti.

Rakkinn Tinni hefur fylgt mér í flestum ferðum mínum um fjöll á Íslandi. Lauslegur útreikningur leiðir í ljós að hann hafi fylgt mér í 1.500 fjall­göngum. Tinni er af tegundinni American Cocker Spaniel sem þykir ekkert sérlega gerð fyrir fjall­göngur. Þessi tegund er frekar smávaxin og lágt undir kvið. Það er því fátt sem gefur til kynna að hann búi yfir getu á þessu sviði. En reynslan er önnur. Hann hefur farið allra sinna ferð um fjöll og að mestu án utan­aðkomandi hjálpar. Undan­tekningin er loka­kaflinn upp á Þverfells­horn Esjunnar. Þar er að finna áltröppu sem hjálpar göngu­mönnum að klöngrast upp hamarinn. Þar þarf að lyfta undir Tinna.

Um miðja nótt vakn­aði ég við hviss­hljóð

Við félagarnir höfum þvælst um allar koppa­grundir. Í lífi hundsins er það gjarnan hápunktur vikunnar þegar við förum með Ferða­félagsfólki í helgar­göngur. Þegar hann sér að ég tek til bakpokann lifnar hann við og sest við útidyrnar og bíður. Dagana sem ég fer ekki á fjöll notar hann til að hvílast og sofa. Svona hefur þetta verið síðan þessi átta ára rakki var fjögurra mánaða.

Rakkinn Tinni í slökun með bangsa.

Erfiðasta ferð hundsins var þegar við gengum á Krák, það fjall sem var hvað lengst úr alfara­leið. Krákur er um 25 kílómetra frá Hvera­völlum, útvörður Arnar­vatnsheiðar í austri. Við félagarnir úr göngu­klúbbnum Sófistum ákváðum að tjalda miðri leið að fjallinu. Veður var ekki með besta móti. Það var súld og kalt. Vætan smaug í gegnum hlífðar­fötin. Tinni var orðinn hund­blautur og í hvert skipti sem við stoppuðum leitaði hvolpurinn skjóls. Við stoppuðum stutt á hæsta tindi Kráks og héldum strax til baka og í tjald­búðirnar. Ég gaf hundinum kjötbita, fékk mér kakóbolla, og skreið örþreyttur inn í tjaldið og hundurinn á eftir mér. Til að einangra okkur frá jörðu hafði ég álteppi í botninn. Ég stein­sofnaði á auga­bragði. Um miðja nótt vaknaði ég við hviss­hljóð og uppgötvaði mér til ógleði að örþreyttur hundurinn var að hafa þvaglát. Það varð handa­gangur í öskjunni þegar ég skutlaði mér út úr tjaldinu og hóf hreinsi­starfið. Ég hafði ekki brjóst í mér til að skamma hvolpinn fyrir að pissa undir eftir að þá þrekraun sem hann gekk í gegnum á tuga kílómetra göngu.

Háski í Bakkaskarði

Tinni örmagna eftir göng­una á Krák.

Tinni komst einu sinni í lífsháska. Þá vorum við að koma niður snarbratt Bakka­skarð í Skálavík á heimleið frá Galtar­vita ásamt hópi fólks frá Ferða­félagi Íslands sem var að koma frá því að njóta þess að vera í vitanum í Keflavík í algjörri einangrun við ysta haf. Frá brún liggur göngu­leiðin um snar­bratta skriðu. Leiðin klofnar neðar þar sem göngufólk getur valið milli þess að fara hinum megin við klett sem klýfur skriðuna. Sumir göngu­manna tóku þá ákvörðun að fara upp fyrir klettinn en aðrir fikruðu sig meðfram honum. Það var þá sem Tinni missti áttir. Hann tók á sprett og ætlaði að fylgja þeim sem tóku krókinn en hætti við og anaði beint af augum, fram af klettinum. Ég sá í sjón­hendingu hvar hundurinn féll til jarðar. Mér sortnaði fyrir augum. Þetta gat varla orðið annað en bani hans. Ég sá hvernig Tinni skall á jörðinni á grastó neðan við klettinn og kastaðist aftur á loft. Mér virtist einsýnt að rakkinn væri allur og hraðaði mér til hans.

Í nokkrar sekúndur lá hundurinn hreyfingar­laus á bakinu með lappirnar upp í loftið. Áhorf­endur voru sem stjarfir vegna örlaga dýrsins. Um það leyti sem ég kom að hundinum sá ég hreyfingu á honum, mér til ofboðs­legs léttis. Svo velti hann sér með erfið­leikum á fæturna og stóð upp. Í smátíma var sem hann héldi ekki jafnvægi og hann skjögraði. Ég settist hjá honum og grand­skoðaði hann. Hryggurinn var heill og hann stóð í fæturna. Við héldum áfram niður í Skálavík. Ég fylgdist grannt með dýrinu. Hundurinn bar ekki nein einkenni þess að fallið hefði skaðað hann. Tinni hafði komist upp með að hrapa 10 metra. Þetta var ekkert nema krafta­verk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi