Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

„Hættulegasti staður kvenna er heimili þeirra“

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar kall­aði eftir óháðri úttekt á með­ferð kyn­ferðis- og kyn­bund­inna ofbeld­is­mála

Arna Lára Jónsdóttir
Arna Lára Jóns­dóttir Er þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar Mynd: Alþingi

Arna Lára Jóns­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, kall­aði eftir óháðri úttekt á með­ferð kyn­ferðis- og kyn­bund­inna ofbeld­is­mála í ræðu sinni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag. Vísaði hún þar meðal ann­ars til nýlegs dóms Lands­réttar sem hefur vakið mikla umræðu.

Arna Lára sagði dóm­inn, sem féll 15. októ­ber, hafa vakið óhug og reiði í sam­fé­lag­inu. Í mál­inu var maður sýkn­aður af nauðgun en hafði áður verið dæmdur í fimm ára fang­elsi í hér­aðs­dómi.

Hún rakti þá áverka sem konan í mál­inu hefði hlotið og nefndi meðal ann­ars rif­beins­brot, heyrn­ar­tap, áverka á höfði og togn­anir. Konan væri enn óvinnu­fær þremur árum síðar.

„Samþykki fyrir kyn­lífi er ekki sam­þykki fyrir ofbeldi,“ sagði Arna Lára.

Hún vakti jafn­framt athygli á und­ir­skrifta­lista þar sem kallað er eftir því að Alþingi og dóms­mála­ráð­herra beiti sér fyrir óháðri úttekt á með­ferð kyn­ferðis- og kyn­bund­inna ofbeld­is­mála, allt frá rann­sókn til dóms­með­ferðar. Rúmlega fjögur þús­und ein­stak­lingar hafa skrifað undir.

Sagði hún mik­il­vægt að úttektin næði meðal ann­ars til sönn­un­ar­mats, lækn­is­fræði­legra gagna og frá­sagna þolenda. Þá þyrfti að skoða sér­stak­lega hvernig sam­þykki, mörk þess, aft­ur­köllun og ásetn­ingur væru metin.

Arna Lára sagði ábyrgð­ina ekki mega fær­ast yfir á þolendur og að þeir ættu ekki að þurfa að rétt­læta hvers vegna þeir hefðu ekki sagt nei oftar eða barist meira á móti.

Hún sagði sam­fé­lagið þurfa að horfast í augu við ofbeldi gegn konum og börnum og lauk máli sínu með þungum orðum.

„Hættu­leg­asti staður kvenna er heim­ili þeirra. Nú er mál að linni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

„Ég á betra skilið, allir innflytjendur eiga betra skilið og allir Íslendingar eiga betra skilið en þetta.“
  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • „Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

  • Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi