Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Orkudrykkir verði bannaðir innan 16 ára

Neysla íslenskra ung­menna í 8.-10. bekk á orku­drykkjum sem inni­halda koffín er með því mesta sem þekk­ist í Evrópu. Neyslan hefur slæm áhrif heilsu. Ungmenni eiga erfitt með að festa svefn og sofa heilan svefn auk þess sem of mikil koffín neysla getur valdið miklu álagi á hjarta- og æða­kerfið.

,,Þetta eru slá­andi nið­ur­stöður og það er nauð­syn­legt að gríða til aðgerða,” segir Helga Gunn­laugs­dóttir sviðs­stjóri lýð­heilsu hjá Matís og sér­fræð­ingur á sviði áhættu­mats mat­væla. 

Mast hefur gefið það út að þau ætli að leggja það til við stjórn­völd að banna orku­drykki til ung­menna yngri en 16 ára.

Áhættu­mats­nefnd hefur rann­sakað að beiðni Mat­væla­stofn­unar hvort neysla orku­drykkja hafi nei­kvæð áhrif á heilsu ung­menna á þessu skóla­stigi. Nið­ur­staðan er sú að neysla íslenskra ung­menna sé tölu­vert meiri en sést hefur í fyrri rann­sóknum og gefur til­efni til aðgerða.

Helstu nið­ur­stöð­urnar sýna:

  • 30% íslenskra ung­menna í 8. bekk neyta orku­drykkja sem inni­halda koffín og neyslan eykst með aldri og er um það bil 50% meðal ung­menna í 10. bekk.
  • Það er sterkt nei­kvætt sam­band milli neyslu íslenskra ung­menna í 8.-10. bekk á orku­drykkjum og svefns. Þau eiga erf­ið­ara með að sofna og hlut­fall þeirra sem seg­ist sofa lítið (6 tíma eða minna á sól­ar­hring) er mjög hátt, eða tæp­lega 16%.
  • Varfærið mat sýnir að a.m.k. 12% ung­menna í 8.-10. bekk sem neyta orku­drykkja, neyta koff­ín­magns yfir þeim örygg­is­mörkum sem Mat­væla­ör­ygg­is­stofnun Evrópu (EFSA) ráð­leggur að sé örugg fyrir full­orðna ein­stak­linga, eða 3 mg/kg lík­ams­þyngdar á dag. Til sam­an­burðar inn­byrða 1-2% ung­menna, sem ekki neyta orku­drykkja, koffín yfir þessum mörkum.
  • Þau ung­menni sem inn­byrða mest koffín, inn­byrða tvö­falt til fjór­falt það magn sem EFSA leggur til sem örygg­is­mörk fyrir koff­ín­inn­töku full­orð­inna, eða 3 mg/kg lík­ams­þyngdar á dag.
  • Langtíma neysla á miklu magni (yfir 3 mg/kg lík­ams­þyngdar á dag) af koff­íni getur valdið miklu álagi á hjarta- og æða­kerfið.
  • Framboð, aðgengi og mark­aðs­setn­ing orku­drykkja hér­lendis virð­ist skila sér í því að neysla ung­menna í 8.-10. bekk sé meiri en æski­legt er, hafi nei­kvæð áhrif á svefn og and­lega líðan þeirra og sé yfir því magni sem valdið getur hækkun á blóð­þrýst­ingi og þar með auknu álagi á hjarta- og æða­kerfið.

Nánar má lesa um skýrsl­una á heima síðu Mast.

Helga seg­ist von­ast til þess að nið­ur­stöð­urnar leiði til fræðslu­átaks um skað­semi orku­drykkja sem leiði til við­horfs­breyt­ingar hjá ung­mennum og ekki síst for­eldrum. ,,Þetta er svo­lítið eins og með áfengið, best er að byrja bara alls ekki.“ 

Á grund­velli áhættu­mats­ins hyggst Mat­væla­stofnun leggja til breyt­ingar á reglum sem varða koffín í drykkj­ar­vörum og aukna fræðslu með það að mark­miði að tak­marka aðgengi ung­menna að koff­ín­ríkum orku­drykkjum.

Fram til þessa hefur skortað gögn til að færa rök fyrir tak­mörk­unum á fram­boði koff­ín­ríkra orku­drykkja á Íslandi. Ef Ísland ætlar að setja strang­ari reglur en almennt gilda á EES-svæð­inu þurfa að vera fyrir því hald­bær og mál­efna­leg rök. Áhættu­mat nefnd­ar­innar er það fyrsta sinnar teg­undar á Íslandi og með því býr Mat­væla­stofnun nú yfir gögnum til að rök­styðja frek­ari tak­mark­anir á fram­boði orku­drykkja sem inni­halda koffín hér á landi til að vernda við­kvæman neyt­enda­hóp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas