Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

Keflavíkurflugvöllur
Kefla­vík­ur­flug­völlur Mynd: Stjórnarráðið

Fimm erlendir rík­is­borg­arar hafa verið ákærðir í þremur aðskildum málum fyrir pen­inga­þvætti eftir að lög­regla lagði hald á háar fjár­hæðir í reiðufé í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar. Um er að ræða fjóra lit­háíska rík­is­borg­ara og einn marokkóskan rík­is­borg­ara.

Í fyrsta mál­inu eru tveir lit­háískir karl­menn ákærðir fyrir að hafa í félagi tekið við sam­tals 10.755 evrum og 21 þús­und krónum í reiðufé frá óþekktum aðila eða aðilum. Samkvæmt ákæru gat þeim ekki dulist að pen­ing­arnir væru ávinn­ingur af refsi­verðum brotum.

Menn­irnir voru hand­teknir í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar 5. októ­ber 2025 þegar þeir voru á leið til Alicante á Spáni. Annar þeirra var með 5.650 evrur og 21 þús­und krónur faldar í far­angri sínum en hinn með 5.105 evrur. Sak­sókn­ari krefst þess að fjár­mun­irnir verði gerðir upp­tækir.

Í öðru mál­inu er marokkóskur karl­maður ákærður fyrir pen­inga­þvætti vegna 608.250 danskra króna sem fund­ust í far­ang­urstösku hans og veski. Hann var hand­tek­inn við kom­una til Kefla­víkur frá Nuuk á Græn­landi 5. ágúst 2025 og hugð­ist halda áfram til Kaup­manna­hafnar. Samkvæmt ákæru hafði hann tekið við pen­ing­unum á Græn­landi frá óþekktum aðila eða aðilum.

Þriðja málið varðar tvær lit­háískar konur sem eru ákærðar fyrir að hafa tekið við sam­tals 9.000 evrum. Þær voru hand­teknar í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar 26. jan­úar síð­ast­lið­inn þegar þær voru á leið til Varsjár í Póllandi. Önnur var með 4.600 evrur faldar í far­angri sínum og hin 4.400 evrur.

Í öllum mál­unum er þess kraf­ist að ákærðu verði dæmd til refs­ingar og greiðslu sak­ar­kostn­aðar. Þá krefst ákæru­valdið upp­töku alls þess reiðu­fjár sem lög­regla lagði hald á.

Í heild­ina eru þetta tæpar 15 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

„Lífið er svo miklu betra með þér“
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu