Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Hemmi Gunn varð oft fyrir barðinu á kjaftasögum: „Feginn að komast í vinnuna eftir veikindin“

Hermann Gunnarsson var þjóðar­gersemi okkar Íslendinga. Alltaf kallaður Hemmi Gunn. Hann heillaði fólk með útgeislun sinni á marga vegu; í íþróttunum, sjónvarps- og útvarps­þáttunum og á sviðinu að skemmta, og á margan annan hátt – enda var maðurinn án hliðstæðu.

Ævisaga Hemma Gunn kom út árið 2013, stuttu eftir að Hemmi lést, þetta sama ár.

Margt brallaði Hemmi í gegnum tíðina og ævintýri hans voru mörg og mikil, sem og afrekin.

Í einum kafla bókarinnar: Hemmi Gunn – Sonur þjóðar, eftir blaða­manninn Orra Pál Ormarsson, segir frá því að Hemmi varð illa veikur af því sem hann hélt vera flensu.

Kaflinn ber yfir­skriftina: Sagður dauðvona.

„Síðla árs 1984 nældi ég mér í flensu, að ég hélt. Lét það þó ekki aftra mér frá því að mæta í vinnu og láta vinnu­félagana vorkenna mér og dástað því hversu duglegur og harðu af mér ég væri. Það kunni ég.“ (Bls. 153)

Á þessum tíma starfaði Hemmi á RÚV sem íþrótta­fréttamaður. Honum gekk illa að losna við það sem hann hélt að væri venjuleg flensa:

Þætt­irnir Á tali hjá Hemma Gunn voru einir þeir vin­sæl­ustu í sögu Íslands.

„Ekkert gekk að fá mig góðan af flensunni og eftir um tvær vikur fór ég að fá óbærilegan höfuðverk og bullandi hitatoppa, kannski svona hálftíma í senn. Það var ekki eðlilegt og fólk ráðlagði mér að leita læknis. Ég gerði það og var settur í allskonar rann­sóknir án þess að neitt kæmi út úr þeim til að byrja með.“ (Bls. 153)

Í fram­haldinu var Hemma vísað til „Sigurðar B. Þorsteins­sonar lyflæknis sem setti mig í blóðprufu.“ (Bls. 153)

Og ekki var þetta flensa sem hrjáði Hemma, ónei. Hann mætti aftur til Sigurðar lyflæknis, sem var áhyggju­fullur:

„Ég kom aftur til hans og niður­staðan úr þeim rann­sóknum var sú að ég væri alvarlega veikur og yrði að leggjast strax inn á spítala. Það þótti mér ómögulegt, hver ætti þá að segja þjóðinni íþrótta­fréttir?“ (Bls. 153)

Sem betur fer var það sem hrjáði Hemma ekki mjög alvarlegt, en slæmt þó. Hann var greindur með katta­bakteríu, eða eins og segir í bókinni:

Um er að ræða sjaldgæfa sýkingu sem örfáir Íslendingar höfðu fengið á undan mér. Send voru sýni til Danmerkur og Banda­ríkjanna til að fá þetta staðfest. Á meðan lá ég í einangrun á Land­spítalanum án þess að finna í raun og veru fyrir neinu. Erfiðast var að bíða.“ (Bls. 153-154)

Hemmi og Elsa Lund voru ógleym­an­leg saman í þáttum Hemma, Á tali með Hemma Gunn.

Hafði Hemmi nælt sér í katta­bakteríuna af ketti er hann passaði fyrir nágranna sína. Varð hann feginn að það var katta­bakterían sem hrjáði hann en ekki eitthvað alvarlegra, sem hann hafði grunað.

Vissulega getur það verið stór­hættulegt, og jafnvel lífs­hættulegt, að fá katta­bakteríu, en í tilfelli Hemma greindist sjúk­dómurinn snemma og fékk hann viðeigandi meðferð og jafnaði sig fljótt.

En það spurðist út að Hemmi væri veikur á þessum tíma og fór af stað kjafta­saga um að hann væri dauðvona vegna krabba­meins. Var það ekki í fyrsta né síðasta sinn er Hemmi þurfti að glíma við kjafta­sögur um sjálfan sig, enda maðurinn afar vinsæll og farsæll í litlu og lokuðu samfélagi. Hemmi hélt þó bara sínu striki og var ekkert að láta þetta angra sig til lengri tíma.

„Ég varð feginn að komast aftur í vinnuna eftir veikindin, fá rútínu aftur í líf mitt.“ (Bls. 154)

Heimild: Hemmi Gunn – Sonur þjóðar. Orri Páll Ormarsson. Sena 2013.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi