Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Bubbi rífur ráðherra í sig: „Hvernig gátuð þið gert okkur og landinu þetta?“

Bubbi Morthens
Bubbi Morthens Mynd: Instagram-skjáskot

Bubbi Morthens skrif­aði opið bréf til Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur og þriggja ráð­herra í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur. Bréfið er um lax­eldi í sjó.

Söngv­ar­inn stór­yrti skrif­aði opið bréf á Facebook til Svan­dísar Svav­ars­dóttur, Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur, Katrínar Jak­obs­dóttur og Lilju Alfreðs­dóttur. Bréfið snýr að stöðu lax­eldis í sjó á Íslandi. Segir Bubbi að það sem hann hafði sagt að myndi ger­ast í pistlum sínum um mála­flokk­inn, hafi svo raun­gerst. „Engar reglur, fyrstur kemur fyrstur fær. Örfáir Íslend­ingar leyfðu þessu að ger­ast með hjálp ráða­manna, og þó höfðu menn vítin til að var­ast þau. Húskar­lar Norð­manna eltu uppi allt sem sagt var eða skrifað, rengdu það, fóru líkt og hýenur um netið og sögðu: kví­arnar munu ekki rifna, við beitum nýrri tækni, firð­irnir munu ekki spill­ast, líf­ríkið mun ekki hljóta skaða af. Við sögðum: lax­inn mun sleppa, fara í árnar og hrygna, en húskar­lar Norð­manna svör­uðu: árnar eru of langt í burtu bla bla bla!“

Bubbi spyr svo hver staðan sé í dag. „Hamfarir er eina orðið sem kemur upp í hug­ann. Trúðu mér, ráða­menn vissu að þetta myndi ger­ast, alveg eins og í öðrum löndum. Það er lít­ill munur á að útrýma villtum laxa­stofni hér á landi og því sem er verið að gera gegn líf­rík­inu í Brasilíu þar sem ein til tvær teg­undir hverfa dag hvern. Sami hvati, sami glæpur og hann hefur nafn: Græðgi. Hér eru póli­tíkusar til­búnir að svíkja líf­ríkið í von um að líf­tími þeirra leng­ist um nokkur ár. Bara fólkið á Seyð­is­firði hefur sýnt kjark og þor með því að mót­mæla komu Norð­manna og íslensku húskarl­anna þeirra í fjörð­inn fagra.“

Þá spyr trú­bador­inn óhræddi, hvað hafi gerst hjá Sjálf­stæð­is­flokknum. „Hvað gerð­ist hjá Sjálf­stæð­is­mönnum og vinum þeirra sem með völdin fara? Hins sama má spyrja sig með VG og Framsókn. Hvernig geta menn lagst á kodd­ann vit­andi að þeir litu undan? Það er ekk­ert sem getur rétt­lætt svik þeirra við líf­ríkið og þegar ald­ur­inn fær­ist yfir með ískaldan sann­leik­ann þá verður erfitt að sofna. Þetta gerð­ist á þeirra vakt. Við Íslend­ingar drápum sein­asta geir­fugl­inn. Kannski náum við þeim áfanga með villta laxa­stofn­inn.“

Lokaorð Bubba eru sterk: „Íslenskir þing­menn og ráð­herrar sein­ustu ára: Skömm ykkar er mik­ill og hún mun lifa inní næstu kyn­slóðir sem munu spyrja: hvernig gátuð þið gert okkur og land­inu þetta?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar