Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ráðherra telur ástæðu til þess að auka skilvirkni í stjórnsýslu loftslagsmála

Talin er ástæða til þess að auka skil­virkni í stjórn­sýslu lofts­lags­mála, bæta mark­miða­setn­ingu og skerpa á ábyrgð ráð­herra á því að ná raun­veru­legum árangri í lofts­lags­málum

Jóhann Páll Jóhannsson
Jóhann Páll Jóhanns­son Umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra Mynd: Stjórnarráðið

Samkvæmt bráða­birgða­tölum um losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi árið 2024 sem Umhverfis- og orku­stofnun hefur skilað Evr­ópu­sam­band­inu þá jókst sam­fé­lags­losun um 2% milli áranna 2023 og 2024, en hefur dreg­ist sama um 7,9% frá 2005.

Það er athygli­vert að losun frá vega­sam­göngum dróst saman um 2,5% á milli áranna 2023 og 2024, auk þess sem að sam­dráttur varð í losun frá kæli­m­iðlum og vegna urð­unar úrgangs.

Sjá má sam­hengi á milli þeirra aðgerða sem kom­ist hafa til fram­kvæmda í lofts­lags­málum und­an­farin ár - styrk­veit­ingar og íviln­anir til raf­bíla­kaupa, tolla á inn­flutn­ing F-gasa og lög­gjöf um betri flokkun og minni urðun úrgangs, sem og sam­dráttar í losun.

Gert er ráð fyrir áfram­hald­andi sam­drætti í þessum flokkum á næstu árum, en losun jókst hins vegar til dæmis frá jarð­varma­virkj­unum, vegna brennslu olíu til fram­leiðslu vara­afls og vegna fiski­skipa.

Ekki er loku fyrir það skotið að aukn­ingin frá jarð­varma­virkj­unum sé til komin vegna linnu­lít­illa jarð­hrær­inga á Reykja­nesi á síð­ustu árum.

Þá er vert að geta þess að losun frá landi hefur auk­ist um innan við 1% frá fyrra ári og er heild­ar­losun vegna land­notk­unar nú skráð lægri en hún hefur áður verið; má rekja það til umbóta í gagna­öflun sem og rann­sóknum á losun frá landi; bind­ingu kolefnis vegna land­notk­unar, en við slíkar breyt­ingar er losun fyrri ára end­ur­reiknuð.

Stjórn­völd gáfu út metn­að­ar­fulla umbóta­á­ætlun um bæt­ingu gagna vegna los­un­ar­bók­halds frá landi fyrir fimm árum; upp­færð áætlun um áfram­hald­andi umbætur í mati á losun frá landi er vænt­an­leg fljót­lega.

Það er flestum ef ekki öllum ljóst að lofts­lags­að­gerðir skipta heim­inn, þjóð­ar­búið og sam­fé­lagið mjög miklu máli og með kolefn­is­bind­ingu og sam­drætti í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda tekur Ísland ekki ein­ungis þátt alþjóð­legum mark­miðum um að sporna við hlýnun jarðar, því vel heppn­aðar lofts­lags­að­gerðir minnka jafn­framt líkur á því að Ísland verði að kaupa los­un­ar­heim­ildir í upp­gjöri lofts­lags­mark­miða í sam­starfi sínu við Evr­ópu­sam­bandið; og með góðum árangri lofts­lags­að­gerða getur Ísland búið til slíkar heim­ildir til sölu innan evr­ópska upp­gjörs­ins.

Talin er ástæða til þess að auka skil­virkni í stjórn­sýslu lofts­lags­mála, bæta mark­miða­setn­ingu og skerpa á ábyrgð ráð­herra á því að ná raun­veru­legum árangri í lofts­lags­málum.

Að þessu öllu miðar frum­varp umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, Jóhanns Páls Jóhanns­sonar, til nýrra heild­ar­laga um lofts­lags­mál, sem er nú í sam­ráðs­gátt stjórn­valda en und­an­farna mán­uði hefur verið unnið mikið að for­gangs­röðun aðgerða í lofts­lags­málum í umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­inu og var málið til umfjöll­unar á rík­is­stjórn­ar­fundi fyrr í þessum mán­uði. Mun umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra kynna for­gangs­að­gerð­irnar fljót­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu