Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Kristrún er komin: „Hvað er í gangi hjá hæstvirtri ríkisstjórn? Það er eins og hún hafi gefist upp“

Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frosta­dóttir for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sneri aftur á Alþingi í dag eftir fæð­ing­ar­or­lof. Hún kvaddi sér hljóðs við upp­haf þing­fundar og gagn­rýndi for­ystu­leysi rík­is­stjórn­ar­innar í þeim málum sem helst brenna á fólk­inu í land­inu. Nefndi Kristrún í því sam­hengi verð­bólgu, vexti, verk­föll og alvar­legan vanda í hús­næð­is­málum.

Þá kall­aði hún eftir því að for­ystu­fólk rík­is­stjórn­ar­innar kæmi á Alþingi í vik­unni til að sitja undir svörum þing­manna um þessi mál. Sagði hún að for­ysta í alþjóða­málum gæti ekki komið í stað for­ystu í inn­an­lands­málum.

„Virðu­legi for­seti. Hvað er í gangi hjá hæst­virtri rík­is­stjórn? Af hverju er eng­inn hérna að taka á þeim málum sem virki­lega brenna á? Eitt er að láta sig alþjóða­málin varða í vik­unni — en hæst­virtir ráð­herrar hljóta að átta sig á að slíkt kemur ekki í stað­inn fyrir að sýna for­ystu hér heima í inn­an­lands­málum. Fólkið í land­inu er að bíða eftir aðgerðum,“ sagði Kristrún og bætti við:

„Nú er ég snúin aftur úr fæð­ing­ar­or­lofi og sé á dag­skrá Alþingis að það er ekk­ert að ger­ast. Lítið á dag­skrá, þing­fundum er frestað. Og ég ætl­aði að eiga hér orða­stað við eitt­hvert af for­ystu­fólki rík­is­stjórn­ar­innar — en ekk­ert þeirra ætlar einu sinni að láta sjá sig hér á Alþingi í vik­unni og sitja undir svörum. Til dæmis um verð­bólgu, vexti, verk­föll, hús­næð­is­mál. Enda virð­ist þeim í raun líða best á meðan póli­tísk umræða hverf­ist um mál sem snúa ekki að veru­leika venju­legs fólks. Þó að efna­hags- og vel­ferð­ar­málin séu efst í huga fólks þessa dag­ana.“

Kristrún sagði einnig að „það er eins og rík­is­stjórnin hafi gef­ist upp, yfir­gefið Alþingi og stóru efna­hags- og vel­ferð­ar­málin. Til að sinna ein­hverju öðru. Ég vil því fara þess á leit við hæst­virtan for­seta að óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir, með ein­hverjum af leið­togum rík­is­stjórn­ar­flokk­anna, verði settar á dag­skrá síðar í vik­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

„Lífið er svo miklu betra með þér“
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu