Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Alexandra varð fyrir holskeflu af gagnrýni: „Ég tók það pínu nærri mér“

Alexandra Briem segir Bjarna hafa tekið rétta ákvörðun
Alex­andra Briem segir Bjarna hafa tekið rétta ákvörðun

Píratinn Alex­andra Briem, borg­ar­full­trúi og fyrrum for­seti borg­ar­stjórnar, fékk yfir sig hol­skeflu af gagn­rýni í vetur en hún heldur utan um snjó­mokstur borg­ar­innar.

„Það er ekki eins og við hefðum stofnað ein­hvern stýri­hóp í des­em­ber til að bregð­ast við ein­hverju sem var þá, þetta var bara yfir­stand­andi vinna sem hafði haf­ist strax í haust til þess að vinna úr upp­lýs­ingum sem sviðið hafði verið að vinna strax eftir vet­ur­inn á undan. Hvernig við gætum brugð­ist við því sem gerð­ist þá. Og sú vinna er búin núna. Og note bene, mér finnst það mjög fyndin, þessi grín sem hafa verið að hlaupa um en það er alls ekki þannig að það að taka mið af snjó­komu sé eina nið­ur­staða hóps­ins, það er verið að leggja til mikla þjón­ustu­aukn­ingu og tölu­verð auka­út­gjöld og til­rauna­verk­efni í því hvernig við getum brugð­ist hraðar og betur við þegar það snjóar mikið. Og að það sé ekki þessi óvissa,“ útskýrði Alex­andra sem er nýjasti gestur Reynis Trausta­sonar í hlað­varps­þætt­inum Mann­lífið.

Reynir les upp úr gagn­rýni lög­reglu­manns eftir við­tal sem tekið var við Alexöndru, sem fór hátt á sam­fé­lags­miðl­unum í vetur. „Viðtalið var ann­ars eins og grínskets frá Fóst­bræðrum sem verður ekki alveg eins fyndið þegar áhorf­endur sitja fastir heima hjá sér í ófærð­inni.“ Alex­andra svar­aði Reyni: „Já eins og ég segi þá tek ég þetta svo­lítið á mig. Ég var þarna á hlaupum, ég var nýkomin frá því að sækja fólk út á flug­völl og hljóp eig­in­lega í við­talið. Mér fannst mik­il­vægt að koma því til skila að mér þætti þetta mik­il­vægt og að við værum að kanna þjón­ust­una ofan í kjöl­inn og þá þarftu svo­lítið að hafa póli­tík­ina með því ef þú myndir bara setja starfs­fólkið í „Heyrðu við ætlum bara að setja auka 100 millj­ónir í þetta, finnið út úr því“, þá vita þau ekki alveg í hvaða átt þau eiga að fara og hafa kannski ekki það traust á að pen­ing­ur­inn komi á end­anum. Þess vegna vill maður hafa póli­tískt umboð til að klára stórar breyt­ingar.“

Reynir spurði Alexöndru hvort hún hefði tekið umræð­una nærri sér. „Pínu, vegna þess að þetta er mál­efni sem okkur lá raun­veru­lega vel á hjarta að gera vel og við vildum sýna að það væri vilji til þess að raun­veru­lega breyta því hvernig þetta hefur verið og setja meiri kraft í það. Ég tók það svona pínu nærri mér að fók­us­inn væri á klaufa­legt orða­lag eða að ég hefði nefnt stýri­hóp eða þjón­ustu­hand­bók. Auðvitað átti ég ekki að gera það en ég tek það bara á mig.“

Hægt er að hlusta á allt við­talið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

„Lífið er svo miklu betra með þér“
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu