Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Slagsmál brutust út í matvöruverslun í nótt – Hestamaður fluttur á bráðamóttökuna

Myndin er samsett
Myndin er sam­sett

Nóttin var nokkuð eril­söm hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í nótt, sam­kvæmt dag­bók hennar. Hér eru helstu við­burðir næt­ur­innar.

Slagsmál brut­ust út í mat­vöru­verslun í aust­ur­borg­inni en lög­reglan fór á vett­vang og tók fram­burð af árás­ar­þola og árás­ar­að­ila. Skýrsla rituð um málið.

Til­kynn­ing barst vegna umferða­slyss í Graf­ar­holti en öku­mað­ur­inn sem olli umferð­ar­tjón­inu var hand­tek­inn vegna gruns um akstur undir áhrifum. Öku­mað­ur­inn var fluttur á stöð þar sem hann lét í té blóð­sýni. Að lok­inni blóð­sýna­töku var hann vistaður í fanga­geymslu vegna rann­sóknar á mál­inu. Þá var skrán­ing­ar­merki bif­reið­ar­innar fjar­lægð þar sem hún reynd­ist ótryggð.

Lög­reglan skildi eftir sektir á 19 bif­reiðum í mið­bænum vegna stöðu­brota.

Óskað var eftir aðstoð lög­reglu á tveimur skemmti­stöðum í mið­borg­inni. Á öðrum skemmti­staðnum var það vegna ölv­unar ein­stak­lings en á hinum vegna slags­mála fyrir utan skemmti­stað­inn. Einnig var ein­stak­lingur hand­tek­inn vegna gruns um að hafa brotið rúðu á veit­inga­stað í mið­borg­inni.

Á lög­reglu­stoð 2, sem þjónar Hafn­ar­firði og Garðabæ segir í dag­bók lög­reglu að hún hafi aðstoðað ölv­aðan ein­stak­ling sem svaf ölv­un­ar­svefni. Ekki kemur fram hvað ein­stak­ling­ur­inn svaf svefn­inum fasta en gera má ráð fyrir að hann hafi verið heima hjá sér.

Lög­reglan stöðv­aði akstur bif­reiðar í Hafn­ar­firð­inum þar sem öku­mað­ur­inn var grun­aður um akstur undir áhrifum. Ekki kemur fram hvaða áhrifum hann var grun­aður um að vera undir, en leiða má að því líkum að það hafi ekki verið vegna áhrifa af úrslita­kvöldi Eurovision, heldur af áfengi eða fíkni­efnum. Þegar nánar var að gáð kom í ljós að öku­mað­ur­inn var einnig án öku­rétt­inda. Öku­mað­ur­inn var laus úr haldi lög­reglu eftir sýna­töku.

Til­kynn­ing barst lög­reglu­stöð 3, sem þjón­ustar Kópavog og Breið­holtið, um hesta­mann sem fallið hafði af baki. Hinn slas­aði var fluttur á bráða­mót­tök­una af sjúkra­bíl með áverka á hendi.

Þá var til­kynnt um árás­ar­gjarnan ein­stak­ling og yfir­staðin slags­mál. Lög­reglan mætti á vett­vang og rann­sak­aði málið. Ekki kom fram hvort slags­málin hafi átt sé stað í Kópa­vogii eða Breið­holt­inu.

Lík­ams­árás í fjöl­býl­is­húsi var til­kynnt lög­reglu en hún fór á vett­vang og er málið í rann­sókn.

Lög­reglan aðstoð­aði öku­menn vegna umferð­ar­slyss en í til­kynn­ingu kemur fram að ágrein­ingur sé um mála­vexti. Ritaði lög­reglan skýrslu um málið.

Í Graf­ar­vogi varð umferða­slys þar sem tvær bif­reiðar skullu saman. Ökumaður og far­þegi í annarri bif­reið­inni voru fluttir með sjúkra­bíl á bráða­mót­tök­una til frek­ari aðhlynn­ingar vegna minni­háttar áverka. Báðar bif­reið­arnar eru óöku­færar og voru dregnar af vett­vangi með drátt­ar­bíl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

„Lífið er svo miklu betra með þér“
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu