Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Boða mótmæli gegn fangabúðum á Íslandi

„Hvenær er nóg komið? Nóg ofbeldi? Nægur ras­ismi?“

Austurvöllur
Aust­ur­völlur Mótmælin eru fyr­ir­huguð 9. sept­em­ber Mynd: Víkingur

Samtökin No Borders Iceland hafa boðað til mót­mæla á Aust­ur­velli þriðju­dag­inn 9. sept­em­ber klukkan 13:30, þegar Alþingi kemur aftur saman eftir sum­ar­frí. Tilefnið eru áform rík­is­stjórn­ar­innar og dóms­mála­ráð­herra Þor­bjargar Sigríðar Gunn­laugs­dóttur um að koma á fót fanga­búðum fyrir fólk á flótta, þar á meðal börn, að sögn sam­tak­anna.

Í yfir­lýs­ingu sam­tak­anna segir að máls­með­ferð umsækj­enda um alþjóð­lega vernd á Íslandi hafi „um langa tíð ein­kennst af ára­löngum töfum og nið­ur­lægj­andi með­ferð sem brýtur gegn mann­legri reisn fólks“. Bent er á að ein­stak­lingar sem hafi lifað af stríð, þjóð­ar­morð eða man­sal séu látnir bíða árum saman eftir nið­ur­stöðu, í and­stöðu við bæði íslensk og alþjóð­leg lög.

Áform dóms­mála­ráð­herra um að koma á fót „fanga­búðum“ hafa verið harð­lega gagn­rýnd af mann­rétt­inda­sam­tökum, þar á meðal UNICEF á Íslandi, Barna­heillum, Þroska­hjálp og ÖBÍ. Samtökin vara sér­stak­lega við því að börn og fatlað fólk verði vistað þar, sem þau telja brjóta í bága við alþjóð­lega sátt­mála.

„Hvenær er nóg komið? Nóg ofbeldi? Nægur ras­ismi?“ spyr No Borders Iceland í yfir­lýs­ingu sinni og segir skila­boðin frá stjórn­völdum skýr: „Fólk á flótta er ekki vel­komið.“

Mót­mæl­endur setja fram þrjár skýrar kröfur:

  1. Taf­ar­lausa afgreiðslu mála sem hafa taf­ist lengi.
  2. Efn­is­með­ferð og rétt­láta máls­með­ferð fyrir alla umsækj­endur, án mis­mun­unar.
  3. Að hvorki börn, fatlað fólk né annað fólk á flótta verði vistað í fanga­búðum.

Hér má lesa yfir­lýs­ing­una í heild sinni:

Komum saman á Aust­ur­velli, þriðju­dag­inn 9. sept­em­ber kl. 13:30 þegar þing­setn­ing hefst og mót­mælum ómann­úð­legri stefnu stjórn­valda í mál­efnum fólks á flótta!

Um langa tíð hefur máls­með­ferð umsækj­enda um alþjóð­lega vernd á Íslandi ein­kennst af ára­löngum töfum og nið­ur­lægj­andi með­ferð sem brýtur gegn
mann­legri reisn fólks. Fólk sem hefur lifað af hryll­ing á borð við þjóð­ar­morð, póli­tískar
ofsóknir, stríð eða man­sal ásamt hættu­legum flótta­leiðum er látið bíða árum saman eftir nið­ur­stöðu — í and­stöðu við bæði íslensk og alþjóð­leg lög.

Nú hefur Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, dóms­mála­ráð­herra, kynnt áform sín um að koma á fót fanga­búðum ætl­uðum full­orðnu fólki og börnum á flótta. Áform þessi hafa verið harð­lega gagn­rýnd af UNICEF á Íslandi, Barna­heillum, Þroska­hjálp og ÖBÍ, sem vara við alvar­legri aft­ur­för í mann­rétt­indum — einkum þegar börn og fatlað fólk verður vistað þar í and­stöðu við alþjóð­lega sátt­mála.

Hvenær er nóg komið? Nóg ofbeldi? Nægur ras­ismi? Skila­boðin eru skýr. Fólk á flótta er ekki vel­komið og íslensk stjórn­völd halda áfram að sýna
það í verki.

Kröfur mót­mæl­enda:

  1. Taf­ar­laus afgreiðsla mála sem hafa taf­ist alltof lengi.
  2. Efn­is­með­ferð og rétt­lát máls­með­ferð fyrir alla — þá sér­stak­lega í við­tölum og mati á gögnum, án mis­mun­unar eða nei­kvæðra for­sendna.
  3. Hvorki börn, fatlað fólk né nokkuð annað fólk á flótta verði vistað í fanga­búðum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

„Lífið er svo miklu betra með þér“
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu