Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Bryndís Schram sakar Pál um lygar: „Ég trúi varla mínum eigin augum“

Bryndís og Jón Baldvin
Bryndís og Jón Baldvin

„Ég trúi varla mínum eigin augum,“ skrifar Bryndís Schram í pistli sem birt­ist á Vísi í morgun. Þar segir hún Pál Magn­ús­son, frænda hennar og þjóð­þekktan fjöl­miðla­mann, hafa logið í við­tali sem Sölvi Tryggva­son tók við hann á dög­unum.

„Í við­tal­inu er Páll að hæla sjálfum sér fyrir að hafa staðið dyggan vörð um rit­stjórn­ar­legt sjálf­stæði sitt gagn­vart eig­endum/útgef­endum. Gott, ef hann er ekki að lýsa sjálfum sér sem braut­ryðj­anda í rann­sókn­ar­blaða­mennsku. En dæmið sem hann tekur, rennir ekki bein­línis stoðum undir sjálfs­hólið: Síend­ur­teknar lyga­fréttir hans um, að Jón Baldvin – þá fjár­mála­ráð­herra – hafi látið skatt­greið­endur borga veislu í til­efni af 50 ára afmæli mínu. Rannsókn Rík­is­end­ur­skoð­unar leiddu í ljós, að þetta var og er til­hæfu­laust með öllu. Bara rógur,“ skrifar Bryndís ósátt.

Þá segir hún stað­reynd­ina vera að eft­ir­maður Jóns Baldvins, eig­in­manns hennar, hafi kom­ist á snoðir um tvær nótur um áfeng­is­út­tektir  á meðan hann var ráð­herra. Eft­ir­mað­ur­inn hafi laumað nót­unum til frétta­manns með ábend­ingu um að nót­urnar væru tíma­settar um svipað leyti og afmæl­is­veisla Bryn­dísar.

„Þetta byrj­aði sem sé sem venju­legt póli­tískt bak­tjalda­makk til að koma höggi á and­stæð­ing. Um leið var þetta rakið til­efni til rann­sókn­ar­blaða­mennsku – til að gegna í verki hlut­verki fjöl­miðla um að veita vald­höfum við­eig­andi aðhald. Hvernig? Með því að bera saman úttekt­arnótur ráðu­neyt­is­ins og til­tæk gögn um kostun veisl­unnar.“ Segir Bryndís sem er allt annað en ánægð með Pál Magn­ús­son. Pistil­inn má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar