Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Órói meðal eldfjallafræðinga

Þor­valdur Þórð­ar­son svarar fyrir sig

Þorvaldur er einn þekktasti eldfjallafræðingur landsins
Þor­valdur er einn þekkt­asti eld­fjalla­fræð­ingur lands­ins Hefur áhyggjur af gosi á Snæ­fells­nesi Mynd: Skjáskot/VF.is

Það virð­ist krauma í mönnum í jarð­fræði­geir­anum en Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur hefur svarað Haraldi Sig­urðs­syni, sem er einnig eld­fjalla­fræð­ingur. Haraldur hafði sakað Þorvald um að setja fram órök­studda spá um eld­gos á Snæ­fells­nesi en Haraldur hefur sjálfur mikið rann­sakað eld­virkni Snæ­fells­ness

„Ég treysti gögnum frá góðum mæl­ingum frekar en órök­studdum spám. En eins og karl­inn sagði, ef þú spáir nógu oft, þá hittir þú á rétta nið­ur­stöðu ein­hvern tím­ann,“ sagði Haraldur meðal ann­ars um spá Þor­valdar um eld­gos. „Það er ábyrgð­ar­hlut­verk þegar sér­fræð­ingur kemur fram með spá um nátt­úru­ham­farir. Gera skal kröfu um að slík spá sé styrkt með birtum gögnum. Svo er ekki hér og reyndar rangt farið með.“

Nú hefur Þor­valdur svarað Haraldi á sam­fé­lags­miðlum. „Það má vel vera að spá mín um eld­gos á Snæ­fells­nesi innan 3 ára reyn­ist röng, en allar dylgjur um að hún sé rök­studd sendi ég aftur til föð­ur­hús­anna,“ skrifar eld­fjalla­fræð­ing­ur­inn.

„Eins og sést á með­fylgj­andi myndum af skjálfta­virkn­inni í Mýr­ar­fjöllum (önnur sýnir dreif­ingu á land­fræði­legri stað­setn­ingu skjálft­anna og hin sýnir dýpt­ar­dreif­ingu þeirra í skorp­unni. Gögnin eru frá Veð­ur­stofu Íslands), þá mynda skjálft­arnir þétta þyrp­ingu við Grjótár­vatnið og, eins og hefur verið bent á, þá eru lang flestir þeirra á 15-20 km dýpi. en, þrátt fyrir það þá eru nokkuð margir skjálftar sem teygja sig upp undir 10 km dýpið og jafn­vel grynnra,“ heldur hann áfram.

Þor­valdur birti gögn máli sínu til stuðn­ingsTelur sig geta rök­stutt sitt skoðun sína

Þá segir hann að ef þessi skjálfta­virkni komi til vegna kviku­söfn­unar þá bendi þétt skjálfta­virkni á 10-15 km dýpt til þess að kvika sé að safn­ast fyrir um og rétt neðan við 20 kíló­metrana.

„Sú stað­reynd að skjálfta­virknin í ákveðnum hrinum nái upp á 10-5 km dýpi er hægt að túlka á fleiri en einn veg. Þá er hægt að horfa fram hjá þess­ari stað­reynd og ein­blína á dýpri skjálft­ana, það er ugg­laust hægt að líta svo á a þeir komi til, ein­hverra hluta vegna, af kviku-söfn­un­inni á 20 km dýpi. Það er líka hægt að líta svo á að þeir komi til vegna þess að kvika sé að byrja að færa sig á grynnra dýpi, ein­hvers­konar upp­haf af kviku-söfnun ofar í skorp­unni.

Nýjar rann­sóknir á gos­mynd­unum á Snæ­fells­nesi (sjá texta úrklippur og með­fylgj­andi myndir frá Kahl et al 2024 og Baxter et al 2023) sýna að í aðdrag­anda þess­ara eld­gosa byrjar kviku-söfn­unin á um 20 km dýpi og færir sig síðan upp á 10 km dýpi áður en kemur til eld­goss. Jafn­framt benda þessar rann­sóknir á að þegar svo er komið geti gos haf­ist með stuttum fyr­ir­vara,“ skrifar Þor­valdur og birtir myndir máli sínu til stuðn­ings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu