Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Gripinn af lögreglu fyrir sjálfsfróun á almannafæri – Vopnaður þjófur leyndi kennitölu sinni

Lögreglan að störfum.
Lög­reglan að störfum. Mynd: Lára Garðarsdóttir

Lög­reglan var kölluð út vegna manns sem ofbauð fólki með því að ástunda sjálfs­fróun á almanna­færi. Maðurinn stund­aði þessa athöfn framan við hús­næði en tekið er fram að losti hans hafi ekki beinst gegn neinum sér­stökum. Lög­reglan greip inn í atburða­rás­ina og ræddi við mann­inn. Hann virt­ist vera undir áhrifum fíkni­efna og er nú til rann­sóknar fyrir brot gegn blygð­un­ar­semi.

Annar ein­stak­lingur logn­að­ist dauða­drukk­inn út af við fyr­ir­tæki í Reykja­vík. Lögreglu tókst að koma honum til með­vit­undar. Aðspurður neit­aði hann að gefa lög­reglu upp kenni­tölu. Hann var með meint þýfi, vopn og fíkni­efni á sér. Sá drukkni var hand­tek­inn og vistaður í fanga­klefa fyrir rann­sókn máls­ins.

Tilkynnt um mögu­legan eld í vél­ar­bún­aði í fyr­ir­tæki í Reykja­vík þar sem lít­ils­háttar reykur kom úr bún­að­inum. Lögregla og slökkvi­lið komu á vett­vang þar sem slökkt var í því litla sem var með hand­slökkvi­tæki.

Tilkynnt um hnupl í mat­vöru­verslun þar sem ger­andi væri enn á staðnum. Lögregla mætti á stað­inn og tók fram­burð af meintum búð­ar­þjófi.

Talsvert upp­nám varð á slysa­deild Land­spít­al­ans vegna aðila sem var orð­inn æstur. Lögregla var kölluð til en var þó snúið frá þar sem heil­brigð­is­starfs­fólki hafði tek­ist að róa hann niður.

Tilkynnt um hnupl í mat­vöru­verslun. Aðilinn var undir áhrifum ávana- og fíkni­efna eða lyfja og var ósam­vinnu­þýður við lög­reglu. Vistaður í klefa fyrir rann­sókn máls­ins.

Ökumaður stöðv­aður við umferð­ar­eft­ir­lit þar sem hann reynd­ist vera án öku­rétt­inda. Akstur stöðv­aður og öku­maður sviptur bif­reið sinni. Hann á yfir höfði sér sekt.

Tilkynnt um grun­sam­legan aðila vera að kíkja í og reyna að opna bif­reiðar. Sá var horf­inn á braut áður en lög­regla kom á vett­vang og fannst ekki.

Tilkynnt um árekstur þar sem ger­andi stakk af á vett­vangi. Lögregla  mætti á vett­vang og ræddi við vitni. Málið í rann­sókn.

Tilkynnt um ölv­aðan öku­mann. Lögregla hafði uppi á við­kom­andi sem reynd­ist vera alls­gáður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar