Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Gönguleiðir ennþá lokaðar á kvöldin: „Gossvæðið er hættulegt svæði“

Það er möguleiki á eldgosi í Torfajökli – myndin tengist fréttinni ekki beint
Það er mögu­leiki á eld­gosi í Torfajökli – myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Lög­reglan metur aðstæður þannig að ennþá verði gossvæð­inu lokað eftir kl. 18:00 út af örygg­is­á­stæðum.

„Að mati lög­reglu­stjóra er ekki for­svar­an­legt að halda göngu­leiðum opnum allan sól­ar­hring­inn. Af örygg­is­á­stæðum verður göngu­leiðum frá Suð­ur­strand­ar­vegi því lokað dag­lega kl. 18, eða fyrr eða seinna eftir atvikum, þegar opið er. Sú ákvörðun gildir á meðan gos stendur yfir við fjallið Litla Hrút. Vig­dís­ar­valla­vegi verður lokað sam­hliða lokun göngu­leiða,“ sagði í til­kynn­ingu frá lög­reglu. Þá hafi rúm­lega 3500 manns farið inn á gossvæðið í gær og allt gengið að mestu vel.

„Leið upp að gos­s­töðv­unum er það sem við­bragðs­að­ilar kalla Mera­dala­leið. Ganga þarf um 18 km leið fram og til baka. Göngu­ferðin hentar því alls ekki öllum. Gangan fram og til baka getur tekið 5 til 7 klukku­stundir. Aðrar merktar göngu­leiðir eru jafn­framt opnar. Mera­dala­leið (leiðEE) var opnuð dag­inn eftir að gos hófst. Leiðin liggur til norð­aust­urs frá bíla­stæði í Stóra Leirdal í átt að útsýn­is­stað á Hraunsels – Vatns­felli,“ og er almenn­ingur minntur á að hlýða fyr­ir­mælum lög­reglu og að halda sig frá hættu­svæðum. Þá mælir lög­reglan með ryk­grímum til að forð­ast megum. Lög­reglan leggur til að börn þung­aðar konur og fólk með hjarta- eða lunga­sjúk­dóma láti það vera að mæta á svæðið.

„Mik­il­vægt er að hafa í huga að gossvæðið er hættu­legt svæði þar sem aðstæður geta breyst skyndi­lega. Lögregla varar fólk við að dvelja nærri gos­s­töðv­unum vegna gasmeng­unar. Hætta eykst þegar vind lægir. Þá geta lífs­hættu­legar gas­teg­undir safn­ast í dældum og geta reynst ban­vænar. Nýjar gossprungur geta opn­ast með litlum fyr­ir­vara og gló­andi hraun getur fallið úr hraunjaðri og hröð og skyndi­leg fram­hlaup orðið þar sem nýjar hrauntungur brjót­ast fram sem erfitt getur verið að forð­ast á hlaupum.“

Þá er fólk að lokun minnt á að leggja bílum sínum í stæði við Suð­ur­strand­ar­veg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar