Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Ráðist að Kára Stefánssyni úti á götu: „Maður byrjaði að öskra á mig“

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. (Mynd: Jón Gústafsson).
Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar. (Mynd: Jón Gúst­afs­son).

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, tjáði sig oft og mikið á meðan far­aldri kór­ónu­veirunnar stóð og það fór illa í margt fólk.

Kári segir í við­tali við hlað­varpið Skoð­ana­bræður að þegar hann horfi til baka er ýmis­legt sem hann myndi gera öðru­vísi í sam­bandi við kór­óna­veiruna.

„Ef við færum aftur af stað og við vissum það sem við vitum núna og þessi pest kæmi, þá held ég að ég myndi leggja til að fólk undir fimm­tugu yrði ekki bólu­sett. Ann­að­hvort undir fer­tugu eða fimm­tugu. Bara vegna þess að með öllum lyfjum, hvort sem það eru bólu­efni eða annað, þá ertu alltaf að meta ann­ars vegar akk­inn af því og hins vegar áhætt­una sem þú tekur. Lækn­is­fræði í dag er ekk­ert annað en sífellt mat á líkum,“ sagði Kári um málið.

Kári telur hins vegar að það þýði ekki að það séu ekki aðilar sem héldu uppi alls konar vit­leysu um far­ald­ur­inn án þess að hafa þekk­ingu um málið. Hann telji að stjórn­völd hafi gert sitt besta í mál­inu, þó að ein­hverjar ákvarð­anir hafi hugs­an­lega reynst rangar. Eftir á að hyggja.

„Þegar þessi far­aldur varð raun­veru­leiki fyrir okkur hér uppi á Íslandi í mars árið 2020 þá leit þetta út fyrir að vera fyrsti kafli í sög­unni um útrým­ingu mann­kyns. Þetta leit út fyrir að vera alveg gíf­ur­lega alvar­legt. Núna þegar við horfum til baka þremur árum seinna er eng­inn vandi að segja: Þetta var ekk­ert svona hættu­legt. Og þar með fara þessar aðgerðir að hljóma eins og mikið ofríki. Ég held að vísu að það sé mjög gott að á meðan á þessu stóð hafi alls konar fólk í íslensku sam­fé­lagi verið að mót­mæla þessum aðgerðum vegna þess að ef það hefði ekki verið þá byggjum við ekki við lýð­ræði,“ sagði Kári.

Þá hafi Kári sjálfur þurft að glíma við vit­leys­inga í hans per­sónu­lega lífi og verið sak­aður um að vera græða millj­arða á far­aldr­inum. Einnig hafi Kári orðið fyrir árásum fólks úti á götu. „Ég var til dæmis á Blöndu­ósi með fjöl­skyldu minni þegar það stopp­aði bíll og maður byrj­aði að öskra á mig að fólk sé enn þá að deyja af lyfjum sem ég hafi gefið þeim í far­aldr­inum. Hann jós yfir mig þessum skömmum.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar