Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

„Slæm geðheilsa er ein stærsta áskorun háskólanema“

Opið pall­borð um geð­heil­brigði stúd­enta á Háskóla­torgi haldið í dag

Guðlaug Eva Albertsdóttir
Guðlaug Eva Alberts­dóttir Guðlaug Eva vill opna umræð­una Mynd: Stúdentaráð Háskóla Íslands

Rétt fyrir hádegi í dag, kl. 11:40, stendur stúd­enta­hreyf­ingin Röskva fyrir opnu pall­borði á Háskóla­torgi þar sem fjallað verður um geð­heil­brigði nem­enda, aðgengi að úrræðum og stöðu mála­flokks­ins í víð­ara sam­hengi. Pall­borðið er haldið í sam­starfi við Geðhjálp og Bergið Headspace.

Markmið pall­borðs­ins er að kynna þau úrræði sem standa nem­endum til boða, draga úr for­dómum í kringum geð­heil­brigð­is­mál og hvetja stúd­enta til að leita sér aðstoðar þegar þörf er á. Við­burð­ur­inn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.

Pall­borðs­gestir eru Helga Sif, sér­fræð­ingur í geð­heil­brigð­is­málum hjá Heil­brigð­is­ráðu­neytið, Pétur Maack, for­maður Sál­fræð­inga­fé­lag Íslands, Rut Sig­urð­ar­dóttir, félags­ráð­gjafi og fjöl­skyldu­fræð­ingur hjá Berginu Headspace, og Ingvar Þór­odds­son, þing­maður Við­reisnar og fyrr­ver­andi odd­viti Röskvu.

Stjórn­andi pall­borðs­ins er Malín Marta Eyfjörð Ægis­dóttir, blaða- og frétta­mennsku­nemi og blaða­maður hjá RÚV.

Pall­borðið hefst á stuttri kynn­ingu frá Nem­enda­þjón­usta Háskóla Íslands, þar sem farið verður yfir þau úrræði sem nem­endum standa til boða, meðal ann­ars við­töl hjá sál­fræð­ingum, meist­ara­nemum í klínískri sál­fræði og nem­endum í félags­ráð­gjöf. Í kjöl­farið munu pall­borðs­gestir kynna sig og tengsl sín við mála­flokk­inn áður en umræður hefj­ast undir stjórn spyrils. Að lokum verður opnað fyrir spurn­ingar úr sal.

Meðal umfjöll­un­ar­efna verða staða geð­heil­brigð­is­mála innan kerf­is­ins, hvað megi bæta, hlut­verk tækni­lausna á borð við gervi­greind í stuðn­ingi við fólk og hvernig megi styrkja aðgengi nem­enda að þjón­ustu.

Guðlaug Eva Alberts­dóttir, odd­viti Röskvu á Heil­brigð­is­vís­inda­sviði og sál­fræði­nemi, segir að mál­efnið snerti stóran hóp:

„Slæm geð­heilsa er ein stærsta áskorun háskóla­nema og ungs fólks almennt í íslensku sam­fé­lagi. Með pall­borð­inu viljum við opna fyrir aukna umræðu innan veggja háskól­ans og vekja athygli á þessu mik­il­væga mál­efni í sam­fé­lag­inu öllu.“

Að pall­borð­inu standa einnig boð til þing­manna, rekt­ors, borg­ar­full­trúa og fram­bjóð­enda í próf­kjörum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, og er gert ráð fyrir að nokkrir þeirra mæti, sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu um við­burð­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

„Lífið er svo miklu betra með þér“
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu