Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

„Birna er öflug, traust og góð kona, sem hefur staðið sig frábærlega í að byggja upp öflugan banka“

Birna Einarsdóttir fékk tæpar 60 milljónir í starfslokasamning
Birna Ein­ars­dóttir fékk tæpar 60 millj­ónir í starfs­loka­samn­ing Mynd: Trausti Hafsteinsson

Öll spjót hafa beinst að Birnu Ein­ars­dóttur frá­far­andi banka­stjóra Íslands­banka, frá því að skýrsla Fjár­mála­eftirilits­ins um banka­söl­una leit dags­ins ljós á dög­unum. Öll spjót nema mögu­lega eitt, spjótið hans Brynjars Níels­sonar.

Brynjar Níelsson, fyrrum aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar fyrrum dóms­mála­ráð­herra, skrif­aði í dag færslu á Facebook þar sem hann tekur upp hansk­ann fyrir Birnu Ein­ars­dóttur, frá­far­andi banka­stjóra Íslands­banka en þau tvö eru vinir frá aldaöðli.

Í færsl­unni segir hann umræð­una í sam­fé­lag­inu oft geta verið „óvægin og stundum ósann­gjörn“ og að stjórn­mála­menn séu oft leið­andi í slíkri umræðu. Segir hann að það hafi verið skyn­sam­legt af Birnu að stíga til hliðar, bank­anum og trausti til hans í hag en tekur fram að það breyti því ekki að hún sé „öflug, traust og góð kona, sem hefur staðið sig frá­bær­lega í að byggja upp öfl­ugan banka.“ Segist hann von­ast til að hitta hana í Vest­manna­eyjum þar sem þau eru vön að elda ofan í „rót­tæka vinstri­menn“. Segir svo að lokum að þau geti kannski lagt fyrir sig matseld „því ekki er vinnan að þvæl­ast fyrir okkur þessa dag­ana.“ Færsluna má lesa í heild hér að neðan:

„Umræðan í sam­fé­lag­inu getur verið óvægin og stundum ósann­gjörn. Stjórn­mála­menn eru oftar en ekki leið­andi í slíkri umræðu, eins sér­kenni­legt og það er. Vinnu­brögð Íslands­banka við sölu á hlut rík­is­ins í bank­anum voru ekki bara aðfinnslu­verð heldur fóru ein­staka starfs­menn gegn lögum. Um það er ekki deilt og ekki heldur um það að þeir sem komu við sögu þurfi að bera ábyrgð.

Banka­stjór­inn, Birna Ein­ars­dóttir, gömul skóla­systir mín úr barna­skóla, vék til hliðar í dag. Held að það hafi verið skyn­sam­legt hjá henni því bank­inn hefur beðið hnekki og fjár­mála­fyr­ir­tæki byggja jú til­vist sína á trausti. Ekkert að þessu breytir því að Birna er öflug, traust og góð kona, sem hefur staðið sig frá­bær­lega í að byggja upp öfl­ugan banka. Vil óska Birnu vel­farn­aðar og von­ast til að hitta hana í Vest­manna­eyjum þar sem við eldum venju­lega saman á hverju ári á Hólnum fyrir fjölda manns, aðal­lega vinstri rót­tæk­linga, þar sem Jón Óskar, mynd­lista­maður, er fremstur meðal jafn­ingja. Við getum kannski lagt fyrir okkur matseld því ekki er vinnan að þvæl­ast fyrir okkur þessa dag­ana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu