Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Segir Dóru fara með rangt mál: „Aldrei áður séð ástæðu til að slíta samskiptum við leikstjóra“

Sigurjón Kjartansson
Sigurjón Kjart­ans­son

Sigurjón Kjartansson segir að slæm samskipti fram­leiðanda Skaupsins og leik­stjóra þess hafa byrjað áður en í ljós kom um eignar­haldið á framleiðslu­fyrirtækinu.

Aðal­fram­leiðandi Áramóta­skaupsins, Sigurjón Kjartansson skrifaði langa færslu á Facebook í gær í kjölfar fréttar Heimildarinnar um slæm samskipti milli fram­leiðanda Skaupsins og Dóru Jóhanns­dóttur leik­stjóra þess.

Í frétt Heimildarinnar segir orðrétt: Heimildin hefur bréf Dóru til RÚV undir höndum. Þar er því lýst hvernig frétt Stundarinnar um eignar­hald Kristjáns Vilhelms­sonar, eiganda Samherja, á framleiðslu­fyrirtækinu, S800, og tengslum þess við fasteigna­félagið Sigtún, sem á og reisti nýja miðbæinn á Selfossi, hafi komið Dóru og fleirum í opna skjöldu. Ekki síst í ljósi þess sem á undan hafði gengið þar sem mikil áhersla hafði að sögn verið á að tökur á Skaupinu færu fram í Nýja-miðbænum á Selfossi. Er þar birt brot úr bréfi Dóru til Rúv um málið: „Pressan að fara á Selfoss var mjög mikil frá fyrsta degi. Ekkert var hlustað á sí endur­teknar óskir leik­stjóra um að fara ekki þangað í tökur og finna frekar aðrar lausnir á spítala­rými til að missa ekki dýrmætan tökutíma í ferðalög. Af einungis 8 tökudögum eru 2-3 tímar í óþarfa ferðalög mjög dýr,“ en í bréfinu er vísað til þess að starfs­menn framleiðslu­fyrir­tækisins hafi svarað neitunum hennar um að taka upp á Selfossi ávalt með þeim hætti að það væri eindreginn vilji Sigurjóns Kjartans­sonar yfir­fram­leiðanda Skaupsins.

Þetta allt segir Sigurjón ekki satt. Segist hann taka því nærri sér að að vera „brigslað um að segja ósatt frá“ í grein Heimildarinnar. Því hafi hann skrifað færsluna, svo fólk fái „smá innsýn í þetta mál.“

„Mér er brigslað um að segja ósatt frá í grein sem hinn nýji miðill Heimildin setti frá sér í gær. Það tek ég nærri mér og vil þessvegna leyfa ykkur að fá smá innsýn í þetta mál. Blaða­maður frá Stundinni hafði samband við mig í desember og spurði mig útí hvernig stóð á því að við hefðum tekið upp á Selfossi og ég sagði honum skýringuna á því; teknir voru tveir sketsar á Selfossi, annar á spítalanum og á hjúkrunar­heimilinu og hinn í Leik­félagi Selfoss. Hvorttveggja voru innitökur. Þetta kom til vegna þess að engin sjúkrahús voru til reiðu á höfuð­borgar­svæðinu. Þá spurði hann hvort það hefðu verið einhverjar útitökur og ég sagði nei. Með því lauk símtalinu og við kvöddumst. Nokkrum dögum síðar var mér sagt að ég hefði „logið að blaða­manni Stundarinnar“ og þá var ég minntur á þetta eina skot sem tekið var upp fyrir utan rútu – á Selfossi – úti. Þessu hafði ég bara alveg gleymt og gekkst að sjálfsögðu strax við því. Sú aðgerð leik­stjóra Skaupsins að reyna að afmá Ölfusár­brúnna útúr þessu eina skoti – á einhvern hátt útaf minni gleymsku – var hinsvegar ekki í mínum höndum og gerði ég ekki veður útaf því enda bar ég fullt traust til hennar. Ég staðfesti þetta svo í símtali sem ég átti við Heimildina, um daginn að mér hefði yfirsést þetta og þótti miður.“

Sigurjón segist því næst vilja koma inn á það sem haft var eftir honum í grein Heimildarinnar, um þátt hans í handrita­teyminu en hann segist vissulega hafa skrifað minna en aðrir í teyminu en að „teymis­vinna snýst um fleira.“

„Ég vil líka koma inná annað sem haft er eftir mér í þessari grein þar sem því er haldið fram að framlag mitt hefði verið lítið þegar kom að handriti: Þegar ég segi að ég „geti ekki sagt að ég hafi lagt eitthvað minna af mörkum en aðrir“, þá á ég við að ég var einn af teyminu og sem slíkur átti ég þátt í að leggja línurnar undir sterkri hand­leiðslu yfir­handrits­höfundar og leik­stjóra. Hópvinna í höfunda­herbergi er dálítið eins og að vera í hljómsveit og í þessari hljómsveit mætti ég ekki á allar æfingarnar og var meira utan­áliggjandi heldur en hinir, enda hafði ég gefið það út við alla strax frá upphafi þegar ég var beðinn um að vera líka partur af handrits­teyminu. Ég vil því ekki að þetta misskiljist sem ósann­girni við félaga mína í handrits­teyminu sem svo sannarlega skiluðu meira af skrifuðu efni heldur en ég. En teymis­vinna snýst um fleira.“

Segir Sigurjón í færslunni að í orðum Dóru um að hún hafi unnið með frábæru „crewi“ en að fram­leiðslan hafi valdið henni vonbrigðum, felist mikil mótsögn.

„Þegar leik­stjóri Skaupsins talar um að hún hafi starfað með frábæru ‚crewi‘ en fram­leiðslan hafi valdið henni vonbrigðum þá felst í því mikil mótsögn – og þó ég hefði nefnt þetta við hana sérstak­lega, þá virðist hún ekki gera sér grein fyrir að þetta frábæra ‚crew‘ sem hún vann með var hluti af þessari ‚ómögulegu‘ fram­leiðslu. Og þó að tveir af fram­leiðendunum hafi hætt beinum samskiptum við hana þá hættu þeir ekki sem fram­leiðendur og þó hún hafi ekki séð þá, þá voru þeir samt að vinna hörðum höndum að því að klára þetta Skaup. Þetta vissi leik­stjórinn.“

Næst kemur Sigurjón inn á samskiptin við Dóru og tekur fram að fram­leiðendurnir tveir sem um er rætt hafi samtals 50 ára reynslu af kvik­myndagerð og þeir hafi aldrei áður séð ástæðu til að slíta samskiptum við leik­stjóra. Segir hann að hin erfiðu samskipti hafi byrjað „löngu áður“ en fréttin um eignar­haldið birtist.

„Ég vil líka taka fram að þessir tveir tilteknu fram­leiðendur hafa samtals 50 ára reynslu af kvik­myndagerð og aldrei hafa þeir áður séð ástæðu til að slíta samskiptum við leik­stjóra. Þessi erfiðu samskipti þar á milli byrjuðu löngu áður en þessi frétt um eignar­hald framleiðslu­fyrir­tækisins birtist, þvert á það sem leik­stjóri heldur fram í greininni.“

Í lokaorðum sínum segir Sigurjón að Áramóta­skaupið hafi aldrei verið í hættu, þrátt fyrir full­yrðingar um slíkt í grein Heimildarinnar.

„Að lokum: Sú full­yrðing í fyrir­sögnum um að Áramóta­skaupið hafi á einhverjum tíma­punkti verið í hættu stenst enga skoðun og því ekki á neinn hátt sann­leikanum samkvæmt. Ekki nema að það teljist hættulegt að fara á Selfoss.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi