Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Andri Snær minnist gamallar frænku: „Þær ólu upp börn saman og sváfu í sama rúmi“

Andri Snær minnist Hiddu, langömmusystur sinnar. Myndin er samsett
Andri Snær minn­ist Hiddu, langömmu­systur sinnar. Myndin er sam­sett

Andri Snær Magnason, verð­launa­rit­höf­undur, birti á Twittersíðu sinni færslu í til­efni Reykja­vík Pride. Þar deilir hann með fylgj­endum sínum reynslu sinni um við­ræður sínar við eldri kyn­slóðir um sam­kyn­hneigð og minn­ist Torf­hildar Jóhann­es­dóttur langömmu­systur sinnar.

Í færslu Andra Snæs kemur fram að Torf­hildur sem oft­ast nær var kölluð Hidda, hafi búið með Guðrúnu Hall­dórs­dóttur undir þeim for­merkjum að vera ráðs­kona á heim­ili þeirra:

„Það tíðk­að­ist nú ekki, en reyndar, Torf­hildur eða Hidda langömmu­systir bjó með Gunnu ljósu, þær ólu upp börn saman og sváfu í sama rúmi.“

Með færsl­unni birtir Andri Snær úrklippu eftir frá frá­fall fóst­ur­sonar þeirra:

Andri Snær birti úrklippu úr tíma­riti þar sem Hidda og Gunna þakka sam­hug sem þeim var sýndur í kjöl­far and­láts fóst­ur­sonar þeirra.

Saman ólu Hidda og Guðrún þrjú börn. Magnús Gunnar Sveins­son fóst­ur­sonur þeirra fórst 9. febr­úrar árið 1959 í sjó­slysi með Botn­vörpung­unum, tog­ar­anum, Júlí. Magnús var ein­ungis 22 ára gam­all.

Afhjúpar þá Andri að lokum að þær Hidda og Guðrún hafi slitið sam­vistum í kjöl­far þess að Guðrún hafi eign­ast nýja ást­konu:

„Þar til Gunna fékk sér nýja „ráðs­konu“ og Hidda var harmi slegin … “

Blaða­maður Mannlífs fór á stúf­ana og fann minn­ing­ar­grein sem birt­ist 1. mars 1974 í Morg­un­blað­inu. Minn­ing­ar­grein­ina skrifar Guðrún til Torf­hildar:

Drottinn gefðu dánum ró og hinum líkn, sem lifa.

Torf­hildur Jóhann­es­dóttir var fædd 9. okt. 1899, og var því tæp­lega 75 ára, er hún and­að­ist. Torf­hildi eða Hiddu, sem við oft­ast köll­uðum hana, kynnt­ist ég haustið 1930. Þá hélt ég til hjá frú Helgu M. Níels­dóttur, ljós­móður að Njáls­götu 1. Hidda var þá þjón­ustu­stúlka þar. Árið eftir fékk ég leigða ibúð hjá Fil­ippusi Guðm. og Kristínu systir Hiddu, að Þórsg. 19 og réðst hún þá ráðs­kona til mín. Hún var mjög heima­kær og hæg­lát og þar sem við vorum aðeins tvær í heim­ili, tókum við um vorið 2 unga­börn. Steinþór, sem þá var 5 mán. og Önnu, sem aðeins var mán­aðar gömul, en hún er syst­ur­dóttir Hiddu. Seinna, eða 1937, tókum við svo mán­aðar gamlan dreng, Magnús Gunnar. Öllum þessum börnum reynd­ist Hidda eins og væru þau hennar eigin börn og þau voru henni alltaf góð.

Eftir að Anna og Steinþór stofn­uðu sin eigin heim­ili var Magnús litli einn eftir hjá okkur og brást ekki umhyggja Hiddu gagn­vart honum.
Að Rauð­ar­ár­stíg 40 bjuggum við frá því 1938, og er ég stofn­aði fæð­ing­ar­heim­ilið, flutt­ist ég á neðri hæð­ina, en Hidda og Maggi bjuggu á efri hæð­inni. Maggi var
sjó­maður á tog­ar­anum „Júlí“ og hann var einn þeirra 32ja skip­verja, er fórst með honum 9. febr. 1959. Þetta tók mikið á okkur öll, að missa þennan indæla dreng. Eftir það bjó Hidda ein í íbúð­inni, og ég veit, að ein­veran og sökn­uð­ur­inn höfðu mikil áhrif
á hana. Hún var mjög góð börnum Önnu og Stein­þórs og naut hún þess líka, er hún lá í 9 mán. á Borg­ar­spít­al­anum. Ég held, að aldrei hafi sá dagur komið, að þau ekki heim­sóttu hana, og var það henni mik­ill léttir í hennar löngu veik­indum. En nú er þessu öllu lokið og nú hefur hún aftur hitt Magga litla, sem ég veit, að hefur tekið henni opnum örmum. Hvíl þú í friði, friður guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt.

Drottinn vakir, Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
Blíðlynd eins og bezta móðir
ber hann þig í faðmi sér.
Allir þótt þér aðrir bregð­ist,
aldrei hann á burtu fer.
Drottinn elskar, Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.

Guðrún Hall­dórs­dóttir.

Fyrir alls ekki svo mörgum árum var sam­kyn­hneigð jafnan haldið leyndri og hún jafn­vel for­dæmd. Jafn­rétt­is­bar­átta hinsegin fólks er enn í fullum gangi og miðað við mann­mergð­ina á götum Reykja­víkur í gær er henni fagnað hásterkt.

Hér að neðan má sjá færslu Andra Snæs í heild:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar