Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Gæti tekið áratugi að vinna upp biðlista að óbreyttu

Full­trúar óhagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga ætla að leggja fram til­lögur er miða að breyt­ingum á fjár­mögnun íbúða innan almenna kerf­is­ins

Fulltrúar óhagnaðardrifinna leigufélaga
Full­trúar óhagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga Ætla að leggja fram til­lögur er miða að breyt­ingum á fjár­mögnun íbúða innan almenna kerf­is­ins Mynd: Víkingur

Komið er á dag­inn að full­trúar óhagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga ætla sér að leggja fram til­lögur er miða að breyt­ingum á fjár­mögnun íbúða innan almenna kerf­is­ins. Segja full­trú­arnir að eft­ir­spurn eftir íbúðum sé svo mikil að það gæti tekið ára­tugi að vinna upp biðlista að óbreyttu.

Hátt vaxta­stig og fjár­mögn­un­ar­kostn­aður gerir rekstur óhagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga erf­iðan og bygg­ing­ar­hæfar lóðir vantar til að tryggja áfram­hald­andi upp­bygg­ingu íbúða fyrir tekju- og eigna­minni heim­ili.

Í síð­ustu viku hitt­ust full­trúar óhagn­að­ar­drif­inna hús­næð­is­fé­laga ásamt HMS (Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun) á sam­ráðs­vett­vangi sem mynd­aður var til að efla upp­bygg­ingu íbúða með við­ráð­an­legum hús­næð­is­kostn­aði.

Vett­vang­ur­inn var stofn­aður í kjöl­far ramma­samn­ings ríkis og sveit­ar­fé­laga og hefur reynst vel sem form­legur vett­vangur sam­ráðs milli félag­anna og stjórn­valda.

Á fund­inum var fjallað um stöðu verk­efna er félögin vinna að og líka var fjallað um helstu hindr­anir í vegi áfram­hald­andi upp­bygg­ingar; Þar var meðal ann­ars bent á að hátt vaxta­stig og óhag­stæð fjár­mögn­un­ar­skil­yrði geri ný verk­efni áfram erfið; nýjar íbúðir séu víða ekki sjálf­bærar án nið­ur­greiðslu félag­anna og það verði til þess að íhuga þurfi vand­lega hvort raun­veru­lega sé hægt að fara af stað með næstu upp­bygg­ing­ar­verk­efni.

Kemur fram að slípa þurfi til stuðn­ings­kerfi hins opin­bera; með meiri sveigj­an­leika í veit­ingu stofn­fram­laga svo hægt sé að nýta það fjár­magn með mark­viss­ari og betri hætti.

Full­trúar óhagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga telja að það þyrfti að hækka stofn­fram­lög sem og við­bót­ar­fram­lög til íbúða er sér­stak­lega eru ætl­aðar fötl­uðu fólki og leita leiða til þess að bjóða lang­tíma­lán með lægri vöxtum heldur en bjóð­ast félög­unum nú.

Minnst er á að skortur sé á bygg­ing­ar­hæfum lóðum þrátt fyrir fögur fyr­ir­heit; jákvæðar und­ir­tektir sveit­ar­fé­laga hafi lítið raun­gerst að und­an­förnu en afar mikil eft­ir­spurn er eftir íbúðum hjá öllum félög­unum; hafa biðlistar lengst veru­lega mikið síð­ustu ár, sem getur mögu­lega tekið fleiri ára­tugi að vinna upp miðað við núver­andi fram­gang.

Fært er í tal að ferlar hjá sveit­ar­fé­lögum og bygg­ing­ar­full­trúum geti verið tíma­frekir og afgreiðsla erinda dreg­ist um of. Tafir við gerð lóða­leigu­samn­inga og í afgreiðslu bygg­ing­ar­leyf­is­um­sókna ásamt íþyngj­andi reglu­verki, með kröfu­harðri bygg­inga­reglu­gerð, eykur á kostnað upp­bygg­ing­ar­verk­efna og það veldur hærra leigu­verði en ann­ars væri hægt að bjóða.

Full­trúar óhagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga segja að „þrátt fyrir yfir­lýst mark­mið um ein­földun reglu­verks hefur lítið sést til slíkra umbóta í fram­kvæmd.“

Einnig er nefnt að „slökkvi­liðið“ hefur „í auknum mæli sett fram kröfur um bruna­varnir sem í ein­hverjum til­fellum eru taldar ganga lengra en kveðið er á um í bygg­inga­reglu­gerð.“

Að sam­starfs­vett­vangnum koma ásamt HMS; Leigu­fé­lagið Bríet, Brák íbúða­fé­lag, Bjarg íbúða­fé­lag, Bygg­inga­fé­lag náms­manna, Félags­stofnun stúd­enta, Félags­bú­staðir, Búseti, Lands­sam­tökin Þroska­hjálp og Brynja leigu­fé­lag og mun hóp­ur­inn á næst­unni leggja fram til­lögur um breyt­ingar á fjár­mögnun og reglu­verki sem snýr að almennum íbúðum, til að tryggja að leigu­verð standi undir mark­miðum almennra íbúða um að það fari ekki umfram fjórð­ung tekna tekju­lægri leigj­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu