Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Lokuðu á Dóru leikstjóra eftir spurningar um fjármálin: „Pressan að fara á Selfoss var mjög mikil“

Dóra Jóhannsdóttir
Dóra Jóhanns­dóttir Mynd: RÚV

Leik­stjóri Áramóta­skaupsins 2022, Dóra Jóhanns­dóttir átti í mestu erfið­leikum með að vinna að Skaupinu vegna samskipta­örðugleika við fram­leiðanda og aðstoðar­leikstjóra, þá Eið Birgisson og Hjört Grétarsson en þeir hættu skyndi­lega að tala við hana.

Heimildin sagði frá erfið­leikum við gerð Áramóta­skaupsins í frétt í gær. Þar er vitnað í skýrslu sem Dóra Jóhanns­dóttir leik­stjóri þess sendi á Ríkis­sjónvarpið þann 17. desember en þar kvartar hún meðal annars yfir afar erfiðum samskiptum við fram­leiðendur og aðstoðar­leikstjóra Skaupsins.

Selfoss-pressan

Samkvæmt skýrslunni, sem Mannlíf hefur einnig undir höndum, var mikil pressa á að taka atriði fyrir Skaupið upp á Selfossi. Ásamt Sigurjóni Kjartans­syni er eigandi að framleiðslu­fyrirtækinu S800, fyrir­tækið Sigtún sem byggði og á Nýja miðbæinn á Selfossi. Aðal­eigandi Sigtúns er útgerðar­maðurinn Kristján Vilhelmsson í Samherja, einn auðugasti maður Íslands. Í skýrslu Dóru kemur fram að pressan á að taka upp atriði á Selfossi hafi verið mjög mikil frá fyrst degi en hún óskaði síendurtekið eftir því að þangað yrði ekki farið til að spara tökutíma.

„Pressan að fara á Selfoss var mjög mikil frá fyrsta degi. Ekkert var hlustað á síendurteknar óskir leik­stjóra um að fara ekki þangað í tökur og finna frekar aðrar lausnir á spítala­rými til að missa ekki dýrmætan tökutíma í ferðalög. Af einungis 8 tökudögum eru 2-3 tímar í óþarfa ferðalög mjög dýr. Það væri hægt að taka upp 1-2 sketsja á þeim tíma eða gefa sér betri tíma í hina,“ skrifar Dóra í skýrslunni.

Er Sigurjón Kjartansson, einn fram­leiðenda, var inntur eftir því í nóvember hvort einhver útisena hafi verið tekin upp á Selfossi neitaði hann því. Síðar kom þó í ljós að eitt atriði sem hann lék sjálfur í, hafi verið tekið upp utandyra á Selfossi en þar sést í Ölfusár­brúna. Sagði Sigurjón í samtali við Heimildina að honum hefði yfirsést að nefna það atriði í nóvember: „Þetta er smá bútur sem tilheyrir öðrum skets og það sést ekkert að þetta sé á Selfossi.“

Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrár­stjóri Sjónvarps hafði ekkert út á vilja fram­leiðenda til að taka Skaupið upp að hluta til á Selfossi er Heimildin spurði hann: „Nei, þarna á í hlut framleiðslu­fyrirtæki sem staðsett er á Selfossi. Rétt eins og framleiðslu­fyrirtæki sem staðsett eru á höfuð­borgar­svæðinu hafa tilhneigingu til að framleiða sitt efni á höfuð­borgar­svæðinu þá þarf ekki að koma á óvart að það vilji framleiða sitt efni á Selfossi. Annars fór ekki fram neitt samtal sérstak­lega um hvar Skaupið yrði tekið upp. Það er eitt af því sem við rýnum við loka­yfirferð, hvort sem er Skaupsins eða annars efnis sem framleitt er fyrir okkur, hvort eitthvað sé óvenjulegt við val á töku­stöðum.“

Klippt á samskiptin

Í skýrslunni segir Dóra að er henni hafi orðið ljóst eftir að frétt Stundarinnar kom út um eignar­haldið, að eigendur Nýja-miðbæjarins á Selfossi væru eigendur S800 framleiðslu­fyrir­tækisins ásamt Sigurjóni, hafi hún áttað sig á „Selfoss-pressunni“. Hafi hún í kjölfarið rætt við á því frá Eið Birgisson, meðframleiðanda og óskað eftir skýringum á því, vöru­innsetningum og hvers vegna hún hefði ekki fengið að sjá fjárhags­áætlun Skaupsins, sem venjan sé en hún hafði ítrekað beðið um það.

Sagðist hún hafa upplifað sem svo að Eiður hafi brugðist við með því að fara í mikla vörn er hún óskaði eftir skýringunum og hafa talað við hana af „miklum dónaskap.“ Segir hún að Sigurjón hafi verið viðstaddur samtalið en ekki hafa gripið inn í en beðið hana afsökunar eftir samtalið.

Eftir samtalið við Eið klipptu bæði hann og aðstoðar­leikstjóri Skaupsins, Hjörtur Grétarsson á samskiptin við Dóru og varð Sigurjón einhvers konar milli­liður eða sendiboði milli þeirra. Í skýrslunni segir: „Fram­leiðandi og aðstoðar­leikstjóri hætta samskiptum við leik­stjóra þrátt fyrir að tökur á lokalagi og pikkup tökur væru eftir, eftir að Stundin birti fréttir um eignar­hald S800 og tökur á Selfossi og leik­stjóri fór að spyrja fram­leiðsluna um budget, spons í mynd og pressuna á að fara til Selfoss.“ Segir Dóra í skýrslunni að Sigurjón hafi útskýrt fyrir henni að mennirnir hefðu hætt samskiptum við hana því þeim hafi þótt svo erfitt að vinna með henni en fullyrt er í skýrslunni að það hafi aldrei borið á góma áður og að Sigurjón hafi ekki sagst hafa upplifað það sjálfur. Þar til þetta kom upp hafi hún einungis fengið hrós frá þeim og öðrum í starfs­liðinu. „Hún var aldrei ein í samskiptum við þá, hvorki í síma né persónu og því eru vitni úr crew-inu að öllum þeirra samskiptum sem geta líklega ekki staðfest sögu þeirra,“ segir í skýrslunni.

Af þessum sökum sagði Dóra að álagið á hana og aðra starfs­menn hafi orðið mjög mikið: „Gríðarlegt álag varð á leik­stjóra og aðra þegar Eiður og Hjörtur hætta skyndi­lega samskiptum en halda samt áfram að vinna að fram­leiðslunni og flækti það og truflaði mjög og gerði vinnuna mjög erfiða og bjó til mikla óþarfa streitu og óöryggi í þeim tökum sem þá voru eftir: lokalag með mörgum flytjendum sem var mjög flókið að skipuleggja og pikköpp tökur þar sem henni var sagt að vera einungis að vera í samskiptum við Sigurjón sem var erlendis og svaraði skila­boðum seint og svaraði aldrei símtölum.“

Dóra segir ennfremur að hún upplifi að fram­leiðslan hafi hagað sér mjög óeðlilega gagnvart henni: „Leik­stjóri upplifir að fram­leiðslan hafi hagað sér mjög óeðlilega gagnvart henni og hafi ætlað að koma sér undan að þurfa að svara óþægilegum spurningum hennar með því að mála hana upp sem erfiða í samskiptum á seinustu metrum verk­efnisins. Ekkert hafði verið minnst á erfið samskipti áður en leik­stjóri hafði beðið um samtöl um hvað gæti betur farið og alltaf fengið jákvæð viðbrögð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi