Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Krabbameinið kom ekki á óvart

Hrefna Eyþórs­dóttir er 34 ára tveggja barna móðir er greindist með brjósta­krabba­mein í fyrra. Nú hafa bæði brjóstin verið fjarlægð, hún hefur lokið lyfja- og geisla­meðferð og er bjartsýn á að vera laus við meinið.

Hrefna er alveg hissa á beiðni um viðtal. Henni finnst hún ekki vera viðtals­efni, hún hafi bara fengið sjúkdóm og tekist á við hann eins og svo margir aðrir. Eftir smávegis eftirgangs­muni lætur hún samt undan og samþykkir að segja Vikunni sögu sína. Fyrsta spurningin er hvort það hafi ekki verið mikið áfall að greinast með krabba­mein svona ung.

„Nei, eiginlega ekki,“ segir hún. „Ég fékk að vita það árið 2015 að ég væri með BRCA-genið en þá var ég ólétt þannig að ég gat ekki byrjað í eftirliti strax. Mér var sagt að hafa samband þremur mánuðum eftir að ég hætti með dóttur mína á brjósti, sem ég gerði. Sama dag og ég hringdi til að tilkynna að ég væri tilbúin að byrja í eftirliti fann ég hnút í brjóstinu. Ég hafði svo sem reiknað með því að ég ætti eftir að fá krabba­mein alveg frá því að ég fékk upplýsingarnar um genið, kannski ekki svona snemma reyndar en einhvern veginn kom þetta mér samt ekkert á óvart.“

Ýtar­legra við­tal er að finna við Hrefnu í köku­blaði Vikunnar.

Mánuði eftir að Hrefna fann hnútinn í brjóstinu lá greiningin fyrir: þriðja stigs brjósta­krabba­mein sem komið var í eitla í holhendinni. Hún segist samt hafa hugsað sem svo að þetta yrði nú lítið mál fyrst ekki voru komin meinvörp annars staðar í líkamanum. Þetta væri bara verkefni sem hún þyrfti að tækla. Hrefna býr á Fáskrúðs­firði og aðgerðir og meðferðir kostuðu auðvitað enda­lausar ferðir milli lands­hluta, en hún segist hafa reynt að hafa fjar­veruna sem allra stysta í hvert sinn.

„Ég þurfti reyndar að byrja á því að fara í brennslu­aðgerð í gegnum hjarta­þræðingu á milli jóla og nýárs í fyrra, þar sem ég hafði verið með hjartsláttar­óreglu,“ útskýrir hún. „Í byrjun janúar fór ég svo til Reykja­víkur og fór í aðgerð þar sem bæði brjóstin voru fjarlægð, auk eitlanna í holhöndinni. Þá var ég í Reykjavík í tólf daga og það var lengsti tíminn sem ég var að heiman í öllu þessu ferli. Eftir það fór ég suður einu sinni í viku í brjósta­uppbyggingu og síðan í lyfja­meðferð en þá flaug ég bara um morguninn og svo heim aftur með kaffi­vélinni. Mér fannst það miklu betra heldur en að þurfa að vera í burtu frá krökkunum í langan tíma. Þegar ég var í geisla­meðferðinni þurfti ég reyndar að vera fyrir sunnan alla vikuna, en fór alltaf heim um helgar.“

„Í byrjun jan­úar fór ég svo til Reykja­víkur og fór í aðgerð þar sem bæði brjóstin voru fjar­lægð, auk eitl­anna í hol­hönd­inni.“

Hrefna er fædd og uppalin á Fáskrúðs­firði og foreldrar hennar búa þar svo hún segist hafa haft mikinn stuðning í gegnum meðferðar­ferlið. Reyndar hafi allir í þessu 700 manna samfélagi verið boðnir og búnir að hjálpa henni, svona bæir séu eins og ein stór fjöl­skylda. Ýtarlegra viðtal er að finna við Hrefnu í kökublaði Vikunnar.

Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni