Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Minkur kom upp úr klósettinu og réðist á Kolbein: „Hann gargaði á móti mér og stökk á mig“

Minkurinn er með slægari kvikindum þessa lands og ekki margir sem væru til í að mæta slíku rándýri á förnum vegi. Fimm ára sonur Kolbeins Sigurðs­sonar bónda á Hvít­árholti var algjör­lega grunlaus einn morguninn árið 1985 er hann hugðist nývaknaður ætla að pissa í klósettið. Upp úr klósettinu spratt það sem pilturinn taldi vera rottu. Hljóp hann til föður síns með fréttirnar sem réðist snögglega til atlögu en rottan reyndist vera minkur.

DV sagði svo frá á sínum tíma:

Minkur kom upp um klósettið á bænum Hvít­árholti:

Stökk á mig og læsti kjaftinum um höndina

Minkur kom upp um klósett­skálina á bænum Hvít­árholti í Hruna­mannahreppi í gærmorgun. Fimm ára sonur bóndans varð kvikindisins fyrst var, stráksi var þá nývaknaður og lallaði sér eins og gengur inn á klósett til að pissa. Kominn inn sá hann hvar minkurinn skaust á bak við ofn, hélt hann að þar væri rotta á ferð. Strákurinn þaut strax út og skellti hurðinni á eftir sér. „Hann kom hlaupandi til okkar i svefn­herbergið og hrópaði að það væri rotta inni á salerni,” sagði Kolbeinn Sigurðsson, bóndi á Hvít­árholti, í gær. „Við vorum svona rétt að vakna. Ég dreif mig fram úr og klæddi mig, fór síðan í vaðstígvél og setti þykka leður­hanska á hendurnar. Eftir það var ekki annað að gera en fara inn og ráðast til atlögu. Minkurinn var þá í sturtu­botninum. Ég æddi á móti honum. Hann gargaði á móti mér og stökk á mig og læsti kjaftinum utan um höndina.” Kolbeinn náði góðu taki á minknum. Að því loknu óð hann með minkinn út á hlað og drekkti honum í vatnsfötu.

Minkurinn hefur örugglega komiö upp um klósett­skálina?
„Já, það voru greinileg verks­ummerki þar, sandur á botninum, för og hár af honum ofar í skálinni.” Kolbeinn kvaðst ekki hafa meiðst í átökunum við minkinn, leður­hanskarnir hefðu séð fyrir því.

Og þú hefur drekkt honum?
„Það var ekki annað að gera þó ég sé ekki vanur minkabani.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi