Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Verið að rannsaka Samherja í þremur löndum

Skjáskot / RÚV
Skjáskot / RÚV

Frá því að ljósi var varpað á athæfi Samherja í Namibíu í umfjöllun Stund­ar­innar og Kveiks hefur ansi margt gerst. Greint hefur verið frá því að spill­ing­ar­lög­reglan í Namibíu, og eftir atvikum önnur þar­lend yfir­völd, hafi haft fyr­ir­tækið og helstu stjórn­endur þess til rann­sóknar um nokk­urt skeið. Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi verk­efna­stjóri Samherja í Namibíu, hefur stöðu upp­ljóstr­ara þar sam­kvæmt lögum og hefur aðstoðað við rann­sókn­ina.

Á Íslandi rann­saka bæði hér­aðs­sak­sókn­ari og emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra málið. Umfjöllun Stund­ar­innar leiddi í ljós að hluti þeirra pen­inga sem Samherji færði inn á reikn­inga í DNB í Noregi, sem voru meðal ann­ars not­aðir til að greiða sjó­mönnum í Afríku laun, væru frá félagi skráðu í skatta­skjól­inu Marshall-eyjum. DNB lok­aði á reikn­ing­anna í fyrra vegna þess að hann taldi óvissu um hver væri raun­veru­legur eig­andi félag­anna sem nýttu þá og að verið væri að nota þá til að stunda pen­inga­þvætti. Norska efna­hags­brota­lög­reglan Økokrim er að skoða þennan anga máls­ins og stjórn DNB hefur farið fram á að fá allar upp­lýs­ingar um málið og verða þær lagðar fyrir stjórn­ar­fund hans í dag, 15. nóv­em­ber.

Þá hefur Samherji sjálfur látið erlenda lög­manns­stofu rann­saka málið, en fyr­ir­tækið hefur í yfir­lýs­ingum sem það hefur sent frá sér sagt að Jóhannes hafi einn framið lög­brotin sem hann lýsti. „Þetta eru ekki vinnu­brögð sem við könn­umst við,“ sagði í einni þeirra.

Umfjöllun Kveiks og Stund­ar­innar sýndi þó, með vísun í gögn, að Samherji greiddi 260 millj­ónir króna inn á reikn­inga þeirra manna sem þáðu mútu­greiðslur eftir að Jóhannes lét af störfum árið 2016. Auk þess var Jóhannes ein­ungis með tak­mark­aða pró­kúru og gögn máls­ins, sem Wikileaks hefur gert opin­ber á Netinu, sýna að hinar ætl­uðu mútu­greiðslur voru ekki greiddar af Jóhann­esi.

Rannsókn lög­manns­stof­unnar fyrir Samherja á Samherja heyrir beint undir stjórn Samherja. Í henni sitja full­trúar eig­enda Samherja: Þor­steins Más, Krist­jáns og Helgu.

Sjá einnig: Samherji opin­ber­aður

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas