Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Ólöf sögð vinna með Mbl í ógeðslegu niðurrifi: „Hún er á framabraut innan Samfylkingarinnar“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar, lætur Ólöfu Helgu Adolfs­dóttur, ritara í stjórn Eflingar, heyra það í pistli sem hún birtir á Facebook. Hún segir Ólöfu haga sér eins og helsta andstæðing verka­fólks. Því sé hún nú í miklu uppáhaldi hjá Morgun­blaðinu, að hennar sögn. Sólveig segir það skjóta skökku við við að Ólöf Helga sé á frama­braut innan Samfylkinginarinnar en sé samt fyrst og fremst að stunda „auðvirði­legu niðurrifi og ógeðslegri aðför að hagsmunum verka og láglaunafólks“.

Pistill Sólveigar í heild sinni

Á Mbl.is er því velt upp hvort ekki sé hægt að reka mig og félaga mína úr Eflingu fyrir svokallaða “framkomu” okkar í garð Ólafar Helgu, sem er með beina útsendingu um hitt og þetta á Mbl.is þessa dagana. Það er gaman að fylgjast með mikilli og einlægri aðdáun Morgun­blaðsins á pólitískum frama­draumum Ólafar Helgu og Trump-ískri staðfestu hennar.

Rætt er við sérfræðing í vinnu­rétti sem segir að nei, það sé ekki svo einfalt að reka lýðræðis­lega kjörinn formann félagsins og meirihluta stjórnar. Það eru eflaust sorglegar fréttir fyrir hina og þessa, þeirra á meðal ritstjóra Morgun­blaðsins. Það er ekkert talað um möguleikan á að grípa einfald­lega til valdaráns í umfjöllun Mbl.is en ég reikna með að sú nálgun verði rædd innan skamms í leiðara blaðsins og Ólöf hvött þar til dáða.

Ég veit að best væri fyrir mig að segja ekkert við þessari „frétta­mennsku“ og einlægum áhuga Moggans á hetju­dáðum Ólafar Helgu, konunnar sem ræðst ítrekað að félags­fólki Eflingar í sí-tryllingslegri tilraunum til að fá athygli í baráttu sinni gegn stjórn félagsins, formanni og samninga­nefnd, en ég fæ ekki lengur orða bundist. Hér segi ég því frá fremur nýliðnum atburðum í tilraun til að varpa ljósi á stöðuna í félaginu:

Eins og þið kannski munið gerði Ólöf Helga tilraun til þess að fá öllum þing­fulltrúum Eflingar, 54 talsins, formanni félagsins þar með töldum, vísað af þingi Alþýðu­sambandsins í haust. Þetta gerði hún þrátt fyrir að kjörbréfa­nefnd sem starfaði í aðdrag­anda þingsins á vettvangi ASÍ hefði úrskurða kjörbréf þing­fulltrúa Eflingar lögleg og þrátt fyrir lögfræðilegt álit sem að sýndi fram á val á þing­fulltrúum hjá félaginu hefði verið í algjöru samræmi við lög, reglur og hefðir Eflingar. Þessi aðför Ólafar að þing­fulltrúum Eflingar, í samvinnu við Agnieszku Ewu, forystu­sveit ASÍ-ung, og nokkra aðila innan úr SGS félögunum og sjómanna­félögunum, vakti auðvitað upp mikil viðbrögð.

Eflingar-fólki var skiljanlega sárlega misboðið yfir þessari aðför að félags­fólki og að lýðræðis­lega kjörinni forystu félagsins, þessari grófu tilraun til að niður­lægja okkur á vettvangi hreyfingarinnar með því að láta reka okkur út af þinginu eins og hvert annað óboðið hyski. Nokkrum dögum eftir aðför Ólafar Helgu og félaga að Eflingar-fólki barst mér áskorun, undir­rituð af því sem næst öllum þing­fulltrúum Eflingar, þar sem skorað var á trúnaðarráð félagsins að beita 8. grein laga félagsins um að svipta Ólöfu Helgu og Agnieszku Ewu rétti til að sinna trúnaðar­störfum á vegum félagsins, vegna þess tjóns og ógagns sem þær höfðu bakað félaginu með fordæma­lausu framferði sínu á þingi ASÍ. Þetta er einmitt sú grein laga félagsins sem að Mbl.is vísar til í umfjöllun sinni um hvort ekki sé hægt að reka formann, stjórn, og samninga­nefnd burt úr Eflingu svo að Ólöf Helga geti tekið við stjórnar­taumunum.

Ég meðtók áskorun þing­fulltrúa og tók hana mjög alvarlega. Undir hana ritaði stór hópur félags­fólks sem tekið hefur virkan þátt í baráttu félagsins. Sem formanni ber mér að hlusta á raddir félags­fólks. En ég komst að þeirri niður­stöðu að eiga samtal við þennan góða og mikilvæga hóp þar sem ég bað þau um að sýna því skilning að mín afstaða væri að ekki væri rétt að fara þessa leið. Að þær stöllur væru meðlimir í stjórn félagsins. Og að við þyrftum að gera okkar besta til að reyna að lifa með því, þrátt fyrir að framferði þeirra væri óþolandi og í raun ólíðandi. Ég veit að ef tillaga þing­fulltrúa Eflingar hefði verið borin upp á trúnaðar­ráðsfundi hjá félaginu hefði hún verið samþykkt. Framferði Ólafar, stöðugar árásir á kjörna forystu félagsins, stöðugar tilraunir hennar til að hleypa upp starfi félagsins, innbrot hennar og Agnieszku Ewu í tölvu­pósthólf mitt og útprentanir á tölvu­póstum mínum, aðför að störfum samninga­nefndar félagsins í harðri kjara­deilu; allt þetta hefur auðvitað gert það að verkum a þolinmæði fólks gangvart henni og vara­formanni er á þrotum.

Ég tel enn að það hafi verið rétt ákvörðun hjá mér að eiga samtal við þing­fulltrúa Eflingar og biðja þá um að hlífa Ólöfu Helgu við þeirri niður­lægingu að vera svipt rétti til að gegna trúnaðar­störfum. Þrátt fyrir að ég hafi í raun verið afstöðu þeirra sammála, að Ólöf Helga sé ekki fær um að starfa af trúnaði og hollustu við félags­fólk og að framferði hennar sanni það og sýni aftur og aftur. Þrátt fyrir að stjórn og nú samninga­nefnd hafi þurft að þola það sem virðist vera enda­lausan illvilja og hefni­girni Ólafar Helgu gagnvart lýðræðis­lega kjörinni forystu félagsins. Þrátt fyrir að aðför hennar að samninga­nefnd félagsins fari eflaust í sögu­bækurnar sem eitt af lágkúrulegustu dæmum sem fólk veit af um persónu­lega framasýki ofar hagsmunum annara.

Ég hef vonað og vona enn að Ólöf Helga leyfi lýðræðis­lega kjörinni forystu félagsins að starfa án þess að sitja undir stöðugum árásum. Ég hef vonað og vona enn að hún leyfi samninga­nefnd að halda áfram sínu mikilvæga og góða starfi í þágu félags­fólks, án þess að þurfa að þola að manneskja sem nýtur einskis trausts, manneskja sem setur eigin hagsmuni í heyranda hljóði og fyrir allra augum ofar hagsmunum allrar samninga­nefndarinnar og þeirra sem hún er að vinna fyrir, manneskja sem er með beina niðurrifs-útsendinu á Mbl.is bókstaf­lega heilu dagana til að grafa undan kjara­baráttu vinnuafls höfuð­borgar­svæðisins, þröngvi sér upp á nefndinga í óþökk allra þar. Ég veit ekki alveg afhverju ég er að vona þetta.

Það er auðvitað orðið fremur augljóst að einstak­lega ólíklegt er að svo verði. En kannski getur einhver liðsinnt Ólöfu Helgu og leitt henni fyrir sjónir að aðför sambærileg þeirri sem hún hefur staðið í gagnvart verkalýðs­félagi í kjara­deilu er sjaldséð, nema af hálfu harðsvíraðra atvinnu­rekenda og áróðurs­meistara þeirra. Að kannski sé tímabært fyrir hana, sérstak­lega með það í huga að hún er á frama­braut innan Samfylkingarinnar sem vonar­stjarna svokallaðs verkalýðs­ráðs flokksins, að snúa sér að öðru en auðvirði­legu niðurrifi og ógeðslegri aðför að hagsmunum verka og láglaunafólks. Kannski getur einhver hjálpað henni að skilja að það eru mjög raun­verulegar og veiga­miklar ástæður fyrir því að hún er ekki velkomin á fundi samninga­nefndar og að sem fullorðin manneskja eigi hún að reyna að horfast í augu við eigið framferði og þær afleiðingar sem að það hefur haft.

Að lokum: Vegna mikils áhuga vissra aðila á samsetningu samninga­nefndar Eflingar, vegna áróðurs félaganna Ólafar Helgu og Halldórs Benjamíns um að eitthvað sé athuga­vert við nefndina, vil ég koma þessu á framfæri:

Það voru 89 Eflingar­félagar skipaðir í samninga­nefnd Eflingar á fundi trúnaðar­ráðs þann 20. október 2022. Af þessum 89 starfar 61 undir kjarsamningum við SA og 28 undir opinberu og afleiddum samningum. Líkt og ávallt hefur verið hjá Eflingu þá starfar ein sameiginleg samninga­nefnd fyrir alla kjara­samninga­gerð meðan samningar eru lausir, en nefndinni er heimilt að skipta með sér verkum skv. 18. grein laga Eflingar.

Myndin sem fylgir er úr frétt Mbl.is í dag. Ég ítreka að þarna er verið að ræða hvort að ekki sé hægt að reka formann og stjórn Eflingar úr félaginu svo að Ólöf Helga geti farið sínu fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi