Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Íslendingar með æði fyrir ofskynjunardópi: „Hljóta allir að sjá hvað þetta er galin pæling“

Hafrún Kristjáns­dóttir, sálfræðingur og deildar­forseti íþrótta­fræði­deildar HR, segir að svo virðist sem nýjasta æði Íslendinga sé ofskynjunarlyf. Það sé sambærilegt og fyrri æði fyrir fóta­nuddtækjum, Ketó og Air fryer. Ekki bætir úr skák að helstu æðismenn séu á Alþingi. Hér fyrir neðan má lesa langloku hennar, að eigin sögn, um hugvíkkandi efni sem hún birtir á Facebook.

Rant fyrsta ársfjórðungs – Langloka um hugvíkkandi efni.

Íslendingar virðast taka allt með miklu trompi, fóta­nuddtæki, ketó, air fryer og nú hugvíkkandi efni.

Umræðan um hugvíkkandi efni er alveg ótrúlega undarleg. Af umræðu í fjöl­miðlum og á samfélags­miðlum að dæma mætti halda að hér væri búið að finna lausn á geðröskunum og hér sé bara lykilinn af hamingju heims­byggðarinnar. Ég einhvernvegin leyfi mér að efast stórlega um að svo sé, því miður.

Nú eru fjölmörg lyfja­fyrirtæki komin eitthvað áleiðis í rann­sóknum sínum á hugvíkkandi efnum en eins og staðan er núna, svo ég vitni í Kára Stef­ánsson “er ekki enn búið að sýna fram á að þetta hafi nein meiriháttar áhrif, til bata, á geðsjúk­dómum”.  Það er vissulega möguleiki að 3ja fasa rann­sóknir (sem nú eru í gangi) leiði í ljós að þessi efni hafi áhrif til bata, umfram lyfleysu, á ákveðnar geðraskanir.  Ég held að það sé ólíklegt að þessi efni muni hafa verulega góð áhrif á allar geðraskanir.  Ef í ljós kemur að þessi efni hafi áhrif á bata á ákveðnum geðröskunum er þó fullnaðar­sigur ekki í höfn því þá þarf að skoða hvort áhrifin séu meiri en með þeim aðferðum sem eru, samkvæmt rann­sóknum, áhrifa­ríkastar núna. Þá vísa ég sérstak­lega til SSRI lyfja og vel strúktúrerðra hugrænar atferlis­meðferðar. Svo eru allskonar aðrir þættir sem þyrfti að skoða betur.

Semsagt, það eru vísbendingar um að þessi efni geti mögulega hjálpað, það þarf frekari rann­sóknir til þess að geta fullyrt um gagnsemi (og öryggi) efnanna. Þetta þarf bara að hafa sinn gang, það er tímafrekt en algjör­lega nauðsynlegt að gera rann­sóknir á nýjum lyfjum. Svo við skulum ekki prjóna yfir okkur, bíðum bara hæfilega vongóð eftir niður­stöðum rannsókna. Þetta er í mínum huga bara alveg basic,  þessvegna kemur svo á óvart hversu hástemd umræðan er. Þetta er líka alveg basic í huga bandaríska geðlækna­félagsins en þeir segja: “There is currently inadequate scientific evidence for endorsing the use of psychedelics to treat any psychiatric disorder” og “Clinical treatments should be determined by scientific evidence in accordance with applicable regulatory standards and not by ballot initiatives or popular opinion”

Svo eru allskonar skrítnir vinklar á þessu. Maður sér sama fólk dásma þessi efni og tala fjálglega um gagnsemi þeirra og taldi gjör­samlega galið að láta bólusetja sig því það var ekki búið að rannsaka Covid bóluefnin nægilega mikið.  Þess ber að geta að bóluefnin fóru í gegnum alla þrjá fasa lyfja­rannsókna en ekki er búið að klára þriðja fasa rannsókna hvað hugvíkkandi efnin varðar. Mótsögnin er því algjör.

Svo er það þings­ályktunar­tillagan sem er eitthvað það skrítnasta sem hefur komið frá alþingi bara frá upphafi held ég. Það er eins og það ágæta fólk sem kemur að þessari þings­ályktunar­tillögu hafi bara alveg gleymt að hugsa. Þessi þings­ályktunar­tillaga ber því miður keim af populisma og vanþekkingu á hvernig vísindi og rann­sóknir virka.  Ég þekki suma af þeim sem eru skráðir fyrir þessari tillögu og ég veit að þar fer klárt og gott fólk. Það hefur bara ruglast aðeins þegar það setti nafn sitt á þessa tillögu. En allavegana þá gengur þessi tillaga m.a. út á . “að undirbúa og leggja til nauðsynlegar breytingar, hvort sem er á lögum, reglu­gerðum eða með öðrum hætti, sem heimila rann­sóknir og tilraunir með hugvíkkandi efnið sílósíbín í geðlækninga­skyni”  og  „að Ísland verði leiðandi í rann­sóknum á gagnsemi hugvíkkandi efna í geðlækninga­skyni“  Byrjum á þessu með lög og reglu­gerðir sem heimila tilraunir og rann­sóknir með hugvíkkandi efni. Lagaramminn hérlendis er þannig að það eru engar sérstakar hindranir í að rannsaka hugvíkkandi efni og bara nákvæmlega engin þörf á að breyta neinum lögum né reglu­gerðum. Þetta eru held ég allir sem þekkja til sammála um. Svo er það þetta um að Ísland eigi að vera leiðandi í rann­sóknum á gagnsemi hugvíkkandi efna í geðlækninga­skyni.

Ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja.  Í fyrsta lagi er það ekki hlutverk alþingis og alþingis­manna að hafa bein áhrif á hvaða rann­sóknir vísinda­menn hérlendis gera. Það er einhver stæk forræðis­hyggja í því og það mætti draga hugtök eins og akademískt frelsi inn í þessa umræðu. Alþingi á að passa upp á að umhverfi til rannsókna sé almennt til sóma hérlendis en ekki koma með tillögu að tiltekið fólk á Landspítalnum eða við háskólanna fari að stunda rann­sóknir á einhverju tilteknu efni alveg óháð áhuga þeirra eða getu til að gera þessar rann­sóknir. Það fólk sem getur gert þessar rann­sóknir hérlendis var ekki einu sinni spurt, eftir því sem ég best veit, hvort það hefði áhuga, tíma og resourca. Það hljóta allir að sjá hvað þetta er galin pæling. Þessi tillaga lýsir líka einhverju fullkomnu þekkinga­leysi á innviðum rannsókna hérlendis.  Þeir eru stórlega ofmetnir í þings­ályktunar­tillögunni svo ekki sé meira sagt. Fyrir mér er þetta þetta álíka kjánalegt og að segja að Ísland eigi að vera leiðandi á heimsvísu í keppnis­hjólreiðum á næsta ári.  Ekkert tillit tekið til aðstæðna hér á landi, fámennis eða skorti á fjármagni. Fyrir þá sem hafa áhuga á þessari tillögu þá getið þið lesið umsagnir sem hafa borist um hana, það er áhugaverð lesning.

Ég gæti haldið lengi áfram en eflaust er ég búin að drepa alla úr leiðindum nú þegar. Þetta þarf bara að hafa sinn gang, simple as that. Alþingi þarf svo pínu að hysja upp um sig. Þetta er vandræðaleg tillaga. Ég vil taka fram að ég mun vera himin­lifandi, eins og held ég allir sem starfað hafa innan geðheil­brigðis­kerfisins ef í ljós kemur að hugvíkkandi efni reynist, samkvæmt rann­sóknum, verulega árangursrík meðferð. Ég held að það sé ágætt að vitna í orð séra Friðriks að lokum, látum ekki kappið bera fegurðina ofurliði

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi