Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Neitað um þyrlu eftir að hún kom að alvarlegu bílslysi: „Sagðist ekki bíða með mannslíf í höndunum“

Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á staðinn að sækja konurnar Mynd/ skjáskot Fréttabladid
Þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar var send á stað­inn að sækja kon­urnar Mynd/ skjá­skot Frétta­bla­did

Hjúkr­un­ar­kona sem kom að alvar­legu bílslysi á Vest­fjörðum í gær gagn­rýnir við­brögð Neyð­ar­lín­unnar sem neit­aði að senda þyrlu eftir ein­stak­lingi sem slas­að­ist í slys­inu.

Fram kom í kvöld­fréttum Rásar 2 að hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn gagn­rýni verk­lag Neyð­ar­lín­unar um það hvenær má kalla út þyrlu og hvenær ekki á slys­stað. Kom fram í frétt­inni að fram­kvæmd­ar­stjóri Neyð­ar­lín­unnar segi að þörf sé að skoða verk­lag við ábend­ingar sem þessar.

Mála­vextir eru þeir að er hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn óskaði eftir því við Neyð­ar­lín­una að þyrla yrði send á vett­vang alvar­legs bíls­slyss sem hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn kom að á Kletts­hálsi í gær, hafi henni verið tjáð að ekki yrði send þyrla fyrr en læknir væri kom­inn á stað­inn. Ein kona var í bílnum sem fór út af á Kletts­hálsi en hún var flutt með þyrlu á Land­spít­al­ann.

Meðal þeirra sem kom að slys­inu voru hjónin Jóhannes Har­alds­son og Helga Jenssen hjúkr­un­ar­fræð­ingur. Sögðu þau strax hafi verið ljóst að þörf væri á þyrlu til að flytja hina slös­uðu á spít­ala. Fyrst hafi Jóhannes hringt í Neyð­ar­lín­una og bað um þyrlu en honum verið tjáð að hún yrði ekki send strax á vett­vang. Stuttu síðar hringdi Helga. „Búin að til­kynna að ég sé hjúkr­un­ar­fræð­ingur og hvar ég væri stödd og það væri mitt mat að það þurfi að kalla til þyrl­una strax, miðað við ástandið á bílnum, konan var með skerta með­vit­und, hún var með lélegan, vægan púls og hún var að detta inn og út,“ sagði Helga í sam­tali við frétta­mann Rúv. „Svarið sem ég fékk var það að það þyrfti að koma læknir fyrst og meta en ég sagð­ist ekki bíða með manns­líf í hönd­unum í eina og hálfa klukku­stund eftir lækni. Ég væri búin að meta hvernig ástandið væri, við þyrftum að fá þyrl­una núna og málið væri þannig að það þyrfti að koma við­kom­andi aðila sem fyrst á bráða­sjúkra­hús.“

Sagði Helga að þau eigi ekki að þurfa standa í „ströggli“ við Neyð­ar­lín­una á svona augna­blikum. „Þarna erum við að tapa mjög dýr­mætum tíma, því að við vitum nátt­úru­lega aldrei hvað ger­ist. Það þarf að koma við­kom­andi á bráða­sjúkra­hús og nota bestu og fljót­virk­ustu leið­ina til þess. Það er okkur öllum kennt og þannig eigum við að bregð­ast við. Við eigum ekki að þurfa að standa í ströggli við Neyð­ar­lín­una af því að þannig eru ferl­arnir. Þá þarf bara að breyta ferlunum.“

Hálftími leið frá því að til­kynn­ing um slysið barst og þar til þyrla var kölluð út. Jón Svanberg Hjart­ar­son, fram­kvæmd­ar­stjóri Neyð­ar­lín­unnar segir að verk­ferl­arnir verði skoð­aðir. „Almennt er það þannig að það er lög­regla eða læknir sem að óskar eftir að þyrla verði kölluð út, þá hefur Neyð­ar­línan eða neyð­ar­verðir Neyð­ar­lín­unnar sam­band við Land­helg­is­gæslunna með slíkar beiðnir sem að kallar þá þyrl­una út. Þannig að það er sem­sagt ekki þannig að almenn­ingur geti kallað eftir þyrlu.“

Frétta­maður Rúv spurði Jón:

En hlýtur það ekki að vera svo­leiðis í ein­hverjum til­vikum, að þá skipti mín­útur það miklu máli að það þurfi að gera und­an­tekn­ingar á þessu, þegar langt er í lög­reglu og lækni?

„Jújú, það er algjör­lega þannig og þegar að við fáum ábend­ingar í þá átt að eitt­hvað megi betur fara varð­andi þá afgreiðslu sem að er í gangi eða eitt­hvað sem betur má fara í ferlum þá rýnum við það sér­stak­lega,“ svar­aði Jón Svanberg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

„Lífið er svo miklu betra með þér“
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu