Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Kvíðinn tilheyri óörugga innra barninu í þér

„Óttinn við að vera dæmd eða refsað“

„Hefurðu einhvern tíma upplifað lágværan en stöðugan ótta um að eitthvað sé alveg að fara úrskeiðis?
„Hefurðu ein­hvern tíma upp­lifað lág­væran en stöðugan ótta um að eitt­hvað sé alveg að fara úrskeiðis? Mynd: Unsplash/Artur Aldyrkhanov

Margir telja að barnið innra með okkur sé eitthvað sem við skiljum eftir í fortíðinni á fullorðins­árum. Raunin er hins vegar sú að við berum það með okkur hvert fótspor og ef það fékk ekki þarfir sínar uppfylltar á sínum tíma fer það á endanum að stjórna ferðinni. Það vill Elyce Kiperman-Gordon meina en hún er bandarískur sálfræði­ráðgjafi og meðferðar­aðili sem sérhæfir sig í heild­rænni sálfræði­meðferð (e. holistic psychotherapy) og geðheil­brigðis­ráðgjöf og starfar undir vöru­merkinu The Feeling Expert®.

„Hefurðu einhvern tíma upplifað lágværan en stöðugan ótta um að eitthvað sé alveg að fara úrskeiðis? Þrátt fyrir að lífið gangi vel á yfir­borðinu, vinnan er frábær, samböndin stöðug og heimilið til fyrir­myndar er eins og það vanti alltaf herslu­muninn upp á að þú getir slakað á.“

Þetta er algengara en fólk grunar, sérstak­lega hjá þeim sem virðast hafa náð mjög langt í sínu lífi segir Elyce. Hún telur að kvíðinn eigi sér oftast þessa auðveldu skýringu. Kvíðinn tilheyri óörugga innra barninu í þér en þetta er sá hluti af þér sem með öllum líkindum staðnaði á þeim aldri þar sem kvíðinn varð partur af þínu daglega lífi.

Felubúningur fullorðinsáranna

Elyce lýsir þessu þannig að það sem gerir þennan innri kvíða svona erfiðan í greiningu er að hann klæðist fullorðins­fötum og mætir í vinnuna með okkur. Við erum ekki að meðtaka hann sem réttilegan ótta við erfiðar aðstæður heldur teljum við okkur trú um að við séum bara að sýna „ábyrgð“, „raunsæi“ eða „tillitssemi“.

Þetta birtist í:

  • Að ofútskýra allt: Finnst þér þú þurfa að hafa allar lýsingar full­komnar svo enginn misskilji þig? Það er ekki bara nákvæmni. Það er óttinn við að vera dæmd(ur) eða refsað.
  • Að gera sig lítinn: Að stíga til baka og taka ekki pláss í herberginu finnst okkur oft vera auðmýkt. Í raun getur það verið gamla reglan um að það sé öruggast að vera ósýni­legur.
  • Stöðugt tilfinningalegt eftirlit: Þú virkjar öll skilningar­vitin og fylgist náið með skapi allra í kringum þig. Það er dásamlegt að hafa samkennd, en ef þú gerir þetta til að tryggja að enginn verði reiður, ertu að verja þig.
  • Fljót(ur) að segja afsakið: Að biðjast afsökunar strax, jafnvel þegar þú gerðir ekkert rangt, finnst okkur bera vott um ábyrgðar­kennd. Oft er það hins vegar fljótlegasta leiðin sem barnið fann á sínum tíma til að stöðva einhverja óvænta og jafnvel ógnvæn­lega atburðarrás.

Breytingin hefst á samtalinu við barnið í sér

Lykillinn að því að komast undan þessu munstri felst ekki í því að „laga“ barnið, þagga niður í því eða ýta því dýpra niður. Það þarf einfald­lega að sýna því meiri athygli.

Næst þegar þú finnur dæmigert varnar­viðbragð hríslast um þig, hvort sem það er löngun til að flýja samræður, afsaka þig að ósekju eða stýra aðstæðum um of, skaltu staldra við. Spyrðu sjálfa(n) þig: „Hvaða útgáfa af mér er að bregðast við núna? Er það fullorðna, örugga manneskjan sem ég er í dag, eða er það litla barnið sem var hrætt?“

Um leið og þú getur komið auga á hvaða útgáfa á í hlut er möguleiki á að þessi viðbrögð hætti að stjórna þér. Í stað þess að láta stjórnast af óttanum geturðu farið að eiga samtal við hann. Þessi litla hliðrun á sjónar­horni er staðurinn þar sem raun­veruleg vellíðan og innri friður getur hafist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Af hverju getur lyktin af makanum verið svona ómótstæðileg?

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði