Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Pálmi harðorður um þátttöku Íslands í Eurovison á næsta ári: „Að selja skrattanum sálu sína“

Pálmi Gunnarsson tónlistarmaður.
Pálmi Gunn­ars­son tón­list­ar­maður. Mynd: Facebook.

„Að selja skratt­anum sálu sína. Þetta kom uppí huga mér þegar ég las um þá ákvörðun RÚV að taka þátt í Söngvakeppni Evr­ópskra Sjón­varps­stöðva með til­heyr­andi útskýr­ingum og afsök­unum,“ skrifar Pálmi Gunn­ars­son, tón­list­ar­maður og fyrsti kepp­andi Íslands í Eurovision, á Facebook vegna þeirrar ákvörð­unar Rík­is­út­varps­ins að taka þátt í keppn­inni í Sviss á næsta ári. Ísra­els­menn, sem fá að keppa í Eurovision, eru af mörgum for­dæmdir vegna stríðs­ins á Gaza þar sem tug­þús­undir sak­lausra borg­ara hafa verið drepnir. Krafa hefur verið uppi um að Ísland snið­gangi keppn­ina vegna þess sem kallað hefur verið þjóð­ar­morð.

Pálmi lýsir furðu sinni á þeirri skýr­ingu stjórn­enda RÚV að Eurovision sé „upp­spretta gleði og ánægju hjá stórum hluta þjóð­ar­innar og vett­vangur dýr­mætra sam­veru­stunda fjöl­skyldna um land allt“.

Hann spyr hvort þá sé ekki rétt að fá Benjamin Net­anyahu, for­seta Ísralels. til að taka sæti í dóm­nefnd Íslands.

Benjamin Net­anyahu

„Er ekki ráð að fá BíBí í dóm­nefnd. Hann gæti komið með fjöll­una með sér,“ skrifar Pálmi.

Annar Eurovi­son­kepp­andi, Friðrik Ómar Hjör­leifs­son, and­mælir Pálma í athuga­semd og telur að vissu­lega sé keppnin upp­spretta gleði og ánægju. Hann sér ekk­ert athuga­vert við að fara í keppn­ina.
„Það er akkúrat ekk­ert rangt við það að Söngvakeppni Evr­ópskra Sjón­varps­stöðva sé upp­spretta gleði og dýr­mætra sam­veru­stunda fjöl­skyldna um allt land er stað­reynd. Engu logið,“ skrifar hann.

Rússland bannað

Fjöl­margir taka undir með Pálma í athuga­semdum og Friðrik Ómar fær einnig nokkurn stuðn­ing við sinn mál­stað.

Helen María Ólafs­dóttir bendir á tví­skinn­ung þeirra sem stjórna keppn­inni. Það hafi eyði­lagt Eurovi­son.
„Að banna Rússland en ekki Ísrael er við­bjóðs­legur tví­skinn­ingur. Ef þeir ætla að fá aftur gleð­ina í þessa keppni þá verður að vísa Ísrael á dyr,“ skrif­aði hún í athuga­semd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Slúður

Slúður

Tak­mark­anir Sig­ur­jóns

Slúður

Neyð­ar­kall Gunnars Smára