Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Vill innanlandsflugvöll í Keflavík og hraðlest til Reykjavíkur: „Ætti ekki að vera mjög flókið“

Er þetta málið?
Er þetta málið? Mynd: Vatnsidnadur.net

Sagn­fræð­ingur stingur upp á Reykja­vík­ur­flug­völlur verði færður til Kefla­víkur og hrað­lest komið á lagg­irnar á milli Reykja­nes­bæjar og Reykja­víkur.

Guðjón Frið­riks­son sagn­fræð­ingur hefur nú bæst í hóp þeirra sem tjá sig um Reykja­vík­ur­flug­völl en það ára­tuga gamla þrætu­epli er enn og aftur á milli tann­anna á fólki. Ástæðan er sú krafa Isavia að höggva skuli um þriðj­ung trjáa Öskju­hlíðar, í nafni flug­ör­yggis.

„Miðað við allan þann fjölda ferða­manna sem nú kemur um Kefla­vík­ur­flug­völl og færi með lest­inni gæti þetta borgað sig til­tölu­lega fljót­lega.“ Bætti Guðjón við að þetta yrði einnig hag­stætt fyrir fólk utan af landi sem ætti leið til útlanda því það myndi fljúga beint á Kefla­vík­ur­flug­velli og svo áfram með milli­landa­flugi.

En hvað með sjúkra­flugin?

„Vanda hinna sjúku mætti leysa með full­kominni bráða­mót­töku í Sjúkra­húsi Kefla­víkur sem mundi létta á bráða­mót­tök­unni í Reykja­vík,“ skrif­aði Guðjón og sagði einnig að með því að færa flug­völl­inn myndu skap­ast „verð­mætar bygg­inga­lóðir í hjarta Reykja­víkur, þar sem hag­kvæmt er að byggja vegna allra lagna og styrkja mjög Mið­borg­ina og háskóla­svæðið“.

Færsluna má lesa hér að neðan:

„Nú er Reykja­vík­ur­flug­völlur enn einu sinni kom­inn á dag­skrá vegna kröfu Ísavía um að eyði­leggja hluta úti­vist­ar­svæð­is­ins í Öskju­hlið. Min skoðun er sú og hefur lengi verið að flytja ætti inn­an­lands­flugið á Kefla­vík­ur­flug­völl og bæta um leið sam­göngur milli hans og höf­uð­borg­ar­svæðs­ins, til dæmis með hrað­lest sem ætti ekki að vera mjög flókið að leggja því landið er til­tölu­lega slétt þarna á milli. Miðað við allan þann fjölda ferða­manna sem nú kemur um Kefla­vík­ur­flug­völl og færi með lest­inni gæti þetta borgað sig til­tölu­lega fljót­lega. Þetta væri líka mjög til hag­ræðis fyrir fólk utan af landi sem er á leið til útlanda, það flygi beint á Kefla­vík­ur­flug­völl og þaðan áfram með milli­landa­flugi. Menn setja fyrir sig vara­flug­völl og sjúkra­flug. Vara­flug­völl tel ég að ætti að gera ein­hvers staðar á Suð­ur­landsund­ir­lend­inu sem gæti líka að ein­hverju leyti þjónað vax­andi byggð á Suð­ur­landi og öllum þeim fjölda ferða­manna sem þangað leita. Vanda hinna sjúku mætti leysa með full­kominni bráða­mót­töku í Sjúkra­húsi Kefla­víkur sem mundi létta á bráða­mót­tök­unni í Reykja­vík. Síðast en ekki síst mundi með nið­ur­legg­ingu Reykja­vík­ur­flug­vallar, sem tekur yfir ógn­ar­stórt flæmi, skap­ast verð­mætar bygg­inga­lóðir í hjarta Reykja­víkur, þar sem hag­kvæmt er að byggja vegna allra lagna og styrkja mjög Mið­borg­ina og háskóla­svæðið. Vegagerð þar mundi líka létta á umferð um Miklu­braut og Sæbraut úr Vesturbæ og af Sel­tjarn­ar­nesi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar