Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Minnkandi virkni við Sundhnúkagíga

Mengun mælist víða um land

Reykmökkur frá eldgosinu
Reyk­mökkur frá eld­gos­inu Skyggnið hefur verið frekar lélegt frá byrjun goss­ins Mynd: Víkingur

Virkni heldur áfram að minnka í eld­gosi við Sund­hnúka­gíga á Reykja­nesskaga en gos­órói lækkar jafnt og þétt og nán­ast engin skjálfta­virkni mælist á svæð­inu. Mengun hefur þó gert eft­ir­lit erfitt og skyggt á vef­mynda­vélar yfir hánótt­ina, en með birt­ingu hefur aðeins létt til og sést nú eld­strókar standa upp úr gíg­unum.

Bjarki Friis, nátt­úru­vá­r­sér­fræð­ingur hjá Veð­ur­stofu Íslands, segir í sam­tali við RÚV að talið sé að gosið haldi enn áfram úr tíu gígum, en það verði ekki stað­fest fyrr en dróna­flugi yfir svæðið lýkur.

Þrátt fyrir að lítil gasmengun mælist á Reykja­nesskaga sjálfum og á Vest­fjörðum hafa fjöl­margar til­kynn­ingar borist um blá­móðu, m.a. frá Snæ­fells­nesi til Trölla­skaga. Mesta brenni­steins­dí­oxíð­meng­unin mælist nú á Akureyri, þar sem tveimur nýjum loft­gæða­mælum var komið upp í gær. Þar er meng­unin nú 600 míkrógrömm á rúmmetra, sem telst óhollt fyrir við­kvæma ein­stak­linga, en hæst mæld­ist hún yfir 6.000 míkrógrömmum á rúmmetra í Njarðvík í gær.

Athygl­is­vert er þó að sú mengun sem nú mælist á Akureyri er ekki að öllu leyti rakin til eld­goss­ins. Samkvæmt Stein­unni Helga­dóttur, einnig nátt­úru­vá­r­sér­fræð­ingi, er um að ræða svifryks­mengun sem gæti komið frá hálend­inu – eða jafn­vel frá Evrópu. Svifryks­mengun veldur einnig óheil­næmum loft­gæðum á Ísafirði.

Loft­gæða­mælar á Reykja­nesskaga sýna aftur á móti góð loft­gæði. Spá Veð­ur­stof­unnar gerir ráð fyrir suð­aust­lægri átt á næst­unni, sem gæti leitt gosmengun til norð­vest­urs yfir Reykja­nesbæ, Voga og vest­an­vert Snæ­fells­nes.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu